Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fim 18. mars 2021 06:00
Aksentije Milisic
Atli Snær í KF (Staðfest)
Mynd: KF
Atli Snær Stefánsson hefur skrifað undir samning hjá 2. deildarliði KF og mun hann spila með félaginu í sumar.

Atli, sem er fæddur árið 2002, er uppalinn hjá KA og er að stíga sín fyrstu skref í meistaraflokki.

Hann lék á m.a. með KF á undirbúningstímabilinu í fyrra og spilaði með öðrum flokki KA um sumarið. Hann skoraði sigurmarkið í 3-2 sigri KF á Tindastól í Lengjubikarnum á dögunum.

Atli er fjölhæfur leikmaður sem getur spilað stöðu miðvarðar, bakvörðs og miðjumanns. KF endaði í sjötta sæti í 2. deildinni á síðustu leiktíð sem nýliðar.


Athugasemdir
banner
banner
banner