ÍH hefur fengið framherjann Brynjar Jónasson í sínar raðir frá Þrótti Vogum.
ÍH hefur verið að styrkja sig vel fyrir komandi átök í 3. deildinni en Andri, tvíburabróðir Brynjars, kom til félagsins fyrr í vikunni sem og miðjumaðurinn Viktor Örn Guðmundsson.
ÍH hefur verið að styrkja sig vel fyrir komandi átök í 3. deildinni en Andri, tvíburabróðir Brynjars, kom til félagsins fyrr í vikunni sem og miðjumaðurinn Viktor Örn Guðmundsson.
Brynjar hefur spilað í þremur efstu deildunum á Íslandi og skorað 62 mörk í 145 leikjum á ferlinum.
Auk þess að spila með Þrótti Vogum í fyrra hefur hann leikið með HK, Þrótti R og Fjarðabyggð.
Athugasemdir