Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   fim 18. mars 2021 12:18
Elvar Geir Magnússon
Hópsmit hjá Inter - Leikmönnum bannað að fara í landsliðsverkefni
Mynd: Getty Images
Leikmönnum Inter hefur verið bannað að ferðast í landsliðsverkefni en félagið hefur tilkynnt að Stefan de Vrij og Matias Vecino hafi greinst með Covid-19 veiruna.

Áður hafði verið tilkynnt að Danilo D’Ambrosio og Samir Handanovic væru smitaðir.

Heilbrigðisyfirvöld á Ítalíu hafa ákveðið að Inter sé bannað að æfa í fjóra daga og hefur leik liðsins gegn Sassuolo, sem fram átti að fara á laugardaginn, verið frestað.

Leikmenn frá Inter geta ekki ferðast í landsleiki í komandi glugga.

Inter er á toppi ítölsku A-deildarinnar, níu stigum frá AC Milan.
Athugasemdir
banner
banner