Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fim 18. mars 2021 12:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Þór/KA fær þrjá erlenda leikmenn (Staðfest)
Nýju leikmennirnir.
Nýju leikmennirnir.
Mynd: Þór/KA
Þór/KA hafnaði í sjöunda sæti Pepsi Max-deildarinnar á síðustu leiktíð.
Þór/KA hafnaði í sjöunda sæti Pepsi Max-deildarinnar á síðustu leiktíð.
Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson
Þór/KA hefur bætt við sig þremur erlendum leikmönnum fyrir átökin í Pepsi Max-deild kvenna.

Colleen Kennedy frá Bandaríkjunum, Miranda Smith frá Kanada og Sandra Nabweteme frá Úganda semja við félagið.

Colleen er bandarísk, kantmaður/framherji, frá Rockvale í Tennessee. Colleen spilaði í WPSL-deildinni með Alabama FC frá 2013 til 2019. Hún hóf jafnframt nám í háskólanum í Mobile í Alabama 2015 og spilaði með skólaliðinu næstu fjögur árin. Eftir það spilaði hún í úrslitakeppni með Nashville Rhythm 2019, en þá bauðst henni að fara til Svíþjóðar og spila með Sandviken IF, þar sem hún gerði sinn fyrsta atvinnusamning. Á árum sínum í Mobile-háskólanum vann hún til ýmissa viðurkenninga og verðlauna, bæði innan sinnar deildar og á landsvísu.

„Hún kveðst hafa ákveðið að koma til Íslands af því að hún þekkir stelpur frá Bandaríkjunum sem hafa spilað hér og þær hafi talað vel um fólkið og landið og hafi náð að taka framförum sem leikmenn og það hafi höfðað til hennar," segir í tilkynningu Þórs/KA.

Miranda er kanadísk og spilar á miðjunni. Hún spilaði síðast í finnsku deildinni, en hún kom á miðju tímabili í fyrra til TPS þegar liðið hafði ekki unnið leik og þurfti að styrkja sig til að reyna að halda sér í deildinni. Það tókst reyndar ekki þótt liðið næði að landa sigrum eftir að Miranda kom þangað. Hún spilaði sjö leiki í Finnlandi. Áður hafði hún spilað í NCAA, 1. deild, með Memphis-háskólanum í Bandaríkjunum og svo heima í Kanada í tvö ár með liði Ottawa-háskóla. Þar vann hún USPORTS-meistaratitilinn 2018 og síðan KELME FISU, heimsmeistaratitil háskólaliða, í Kína árið 2019.

„Miranda kveðst hafa heyrt talað vel um íslensku deildina og sé því spennt að koma hingað og spila, og ekki síður að njóta fegurðar landsins," segir í tilkynningu frá Þór/KA.

Sandra er landsliðskona frá Úganda. Þar hóf hún að æfa knattspyrnu með strákum þegar hún var fimm ára og æfði með strákum þar til hún varð 14 ára, en þá hafði hún vakið athygli þjálfara og var boðið í Kawempe Muslim-skólann í Úganda þar sem hún spilaði bæði fyrir skólaliðið og meistaraflokksliðið þegar kvennadeildin var stofnuð 2015. Hún spilaði tvö tímabil í deildinni í Úganda. Á fyrra tímabilinu skoraði hún 17 mörk í níu leikjum og 23 mörk í 14 leikjum á síðari tímabilinu.

Árið 2016 hélt hún til Bandaríkjanna í háskólanám og lék með SWOSU-háskólaliðinu (Southwestern Oklahoma State University) næstu fjögur árin meðfram námi í eðlisverkfræði og stærðfræði. Hún hélt áfram að raða inn mörkum vestra, spilaði samtals 81 leik með SWOSU-liðinu, skoraði 78 mörk og átti 36 stoðsendingar. Hún átti meðal annars stóran þátt í að liðið vann GAC-deildina (Great American Conference) og vann til margvíslegra viðurkenninga á ferli sínum þar, bæði innan deildarinnar og á landsvísu.

„Uppruni, ferill og afrek Söndru gera hana að virkilega áhugaverðum leikmanni og verður gaman að sjá hvernig hún mun standa sig í íslenska boltanum," segir í tilkynningu frá Akureyrarfélaginu.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner