föstudagur 29. mars
Lengjubikar kvenna - A-deild úrslit
miðvikudagur 27. mars
Úrslitaleikur Lengjubikarsins
þriðjudagur 26. mars
Umspilsleikur um EM sæti
U21 karla - EM 25 undankeppni
fimmtudagur 21. mars
EM umspilið
miðvikudagur 20. mars
Lengjubikar karla - Undanúrslit
sunnudagur 10. mars
Enska úrvalsdeildin
þriðjudagur 27. febrúar
Landslið kvenna - Þjóðadeild umspil
föstudagur 23. febrúar
fimmtudagur 1. febrúar
Úrslitaleikur Reykjavíkurmótsins
fimmtudagur 18. janúar
Vináttulandsleikur
sunnudagur 14. janúar
fimmtudagur 14. desember
Sambandsdeild UEFA
föstudagur 8. desember
Úrslitaleikur Bose-mótsins
þriðjudagur 5. desember
Þjóðadeild kvenna
mánudagur 4. desember
Umspil fyrir HM U20
föstudagur 1. desember
Þjóðadeild kvenna
fimmtudagur 30. nóvember
Sambandsdeild UEFA
sunnudagur 19. nóvember
Undankeppni EM
fimmtudagur 9. nóvember
Sambandsdeild UEFA
þriðjudagur 31. október
Landslið kvenna - Þjóðadeild
föstudagur 27. október
fimmtudagur 26. október
Sambandsdeild UEFA
miðvikudagur 18. október
Forkeppni Meistaradeildar kvenna
þriðjudagur 17. október
Undankeppni EM
föstudagur 13. október
þriðjudagur 10. október
Meistaradeild kvenna
sunnudagur 8. október
Besta-deild karla - Efri hluti
fimmtudagur 5. október
Sambandsdeild UEFA
mánudagur 2. október
Besta-deild karla - Efri hluti
sunnudagur 1. október
Besta-deild karla - Neðri hluti
Besta-deild karla - Efri hluti
Besta-deild karla - Neðri hluti
föstudagur 29. september
Fótbolti.net bikarinn
þriðjudagur 26. september
Landslið kvenna - Þjóðadeild
mánudagur 25. september
Besta-deild karla - Efri hluti
sunnudagur 24. september
Besta-deild karla - Neðri hluti
Besta-deild karla - Efri hluti
Besta-deild karla - Neðri hluti
Lengjudeild karla - Umspil
laugardagur 23. september
Besta-deild karla - Neðri hluti
Fótbolti.net bikarinn
föstudagur 22. september
Landslið kvenna - Þjóðadeild
fimmtudagur 21. september
Sambandsdeildin
miðvikudagur 20. september
Besta-deild karla - Efri hluti
Lengjudeild karla - Umspil
Besta-deild karla - Neðri hluti
mánudagur 18. september
fimmtudagur 14. september
Besta-deild kvenna - Efri hluti
miðvikudagur 13. september
þriðjudagur 12. september
Undankeppni EM U21 landsliða
mánudagur 11. september
Undankeppni EM
sunnudagur 10. september
Besta-deild kvenna - Neðri hluti
fimmtudagur 28. mars
CHAMPIONS LEAGUE: Playoffs - Women
Barcelona W 3 - 1 SK Brann W
PSG (kvenna) 3 - 0 Hacken W
Vináttulandsleikur
Argentina U-16 2 - 3 Cote dIvoire U-16
Czech Republic U-16 1 - 2 Mexico U-16
France U-16 6 - 2 Saudi Arabia U-16
Japan U-16 2 - 1 Wales U-16
mið 18.apr 2018 17:00 Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Magazine image

Spá Fótbolta.net - 6. sæti: Breiðablik

Sérfræðingar Fótbolta.net spá því að Breiðablik endi í 6. sæti í Pepsi-deildinni í sumar. Fréttaritarar spá í deildina en þeir raða liðunum upp í röð og það lið sem er í efsta sæti fær 12 stig, annað sæti 11 og svo koll af kolli niður í tólfta sæti sem gefur eitt stig. Breiðablik endar í 6. sæti ef spáin rætist.

Varnarmaðurinn öflugi Damir Muminovic.
Varnarmaðurinn öflugi Damir Muminovic.
Mynd/Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Hrvoje Tokic.
Hrvoje Tokic.
Mynd/Fótbolti.net - J.L.
Ágúst Gylfason tók við Breiðabliki í vetur.
Ágúst Gylfason tók við Breiðabliki í vetur.
Mynd/Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Oliver Sigurjónsson er kominn aftur á láni frá Bodö/Glimt.
Oliver Sigurjónsson er kominn aftur á láni frá Bodö/Glimt.
Mynd/Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Vinstri bakvörðurinn Davíð Kristján Ólafsson.
Vinstri bakvörðurinn Davíð Kristján Ólafsson.
Mynd/Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Aron Bjarnason.
Aron Bjarnason.
Mynd/Fótbolti.net - J.L.
Mynd/Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Spáin:
1. ?
2. ?
3. ?
4. ?
5. ?
6. Breiðablik 55 stig
7. Grindavík 43 stig
8. Fjölnir 23 stig
9. ÍBV 21 stig
10. Fylkir 19 stig
11. Víkingur R. 18 stig
12. Keflavík 15 stig

Um liðið: Breiðablik endaði í sjötta sæti í Pepsi-deildinni í fyrra eftir þjálfaraskipti og kaflaskipt tímabil. Blikar réðu Ágúst Gylfason til starfa í haust og hafa gefið út að markmiðið í sumar sé að enda í topp þremur.

Þjálfari - Ágúst Gylfason Gústi púst tók við Breiðabliki af Milos Milojevic síðastliðið haust. Gústi hefur undanfarin sex ár verið þjálfari Fjölnis en hann endaði einnig leikmannaferil sinn í Grafarvogi áður en hann varð aðstoðarþjálfari Fjölnis um tíma. Ágúst lék meðal annars með Brann í Noregi á ferli sínum sem leikmaður en hann hefur gert góða hluti sem þjálfari undanfarin ár.

Geta Blikar farið í topp þrjá?

Styrkleikar: Eftir nokkuð þungt tímabil í fyrra hefur gengi Blika verið ágætt í vetur og bjartsýni ríkir í Kópavoginum fyrir sumarið. Miðja Blika er ein sú besta í deildinni með þá Andra Rafn Yeoman, Gísla Eyjólfsson og Oliver Sigurjónsson. Margir leikmenn liðsins hafa verið lengi hjá Breiðabliki og hópurinn er sterkur og samheldinn.

Veikleikar: Útivöllurinn gaf meira en heimavöllurinn fyrir Breiðablik í fyrra og liðið þarf að fjölga stigunum á Kópavogsvelli til að blanda sér í titilbaráttuna. Markahæstu leikmenn Blika í fyrra skoruðu sex mörk og liðið þarf að fá fleiri mörk frá fremstu mönnum í sumar. Hæfileikaríkir leikmenn eru hjá Breiðabliki en oft hefur liðið dottið niður á sama plan og veikari andstæðingar. Meiri stöðugleika þarf í toppbaráttuna.

Lykilmenn: Gísli Eyjólfsson og Damir Muminovic. Gísli sprakk út í fyrra og frammistaða hans á undirbúningstímabilinu gefur góð fyrirheit. Damir hefur verið eins og klettur í vörn Breiðabliks undanfarin ár og hann verður áfram í lykilhlutverki í sumar.

Gaman að fylgjast með: Alexander Helgi Sigurðarson er ungur miðjumaður sem er kominn aftur heim eftir dvöl hjá AZ Alkmaar. Það verður spennandi að sjá hann í Pepsi-deildinni í sumar.

Spurningamerkið: Blikar náðu ekki jafn þéttum varnarleik í fyrra og oft áður. Nær liðið að stoppa upp í götin og fara í toppbaráttuna?

Völlurinn: Kópavogsvöllur er yfirleitt í toppstandi enda er vallarstjórn í höndum Bö-vélarinnar, Magnúsar Vals Böðvarssonar. Tekur um 1.700 áhorfendur í sæti en ekki eru mjög mörg ár síðan flott stúka var tekin í notkun.

„Markmiðið langt frá þessari spá"

Þjálfarinn segir - Ágúst Gylfason
„Það var mikið í gangi hjá félaginu á síðasta ári en við erum komnir á beinu brautina. Það eru allir að spá okkur 6-7. sæti en mér finnst að það búi miklu meira í þessu liði. Við erum búnir að setja okkur markmið að vera í efstu þremur sætunum og það er langt frá þessari spá. Við þurfum að mæta og sýna að þið hafið rangt fyrir ykkur. Við teljum okkur vera nógu til að berjast um þessi efstu þrjú sæti."

Komnir:
Arnór Gauti Ragnarsson frá ÍBV
Guðmundur Böðvar Guðjónsson frá ÍA
Jonathan Hendrickx frá Leixoes
Oliver Sigurjónsson frá Bodö/Glimt á láni

Farnir:
Dino Dolmagic
Ernir Bjarnason í Leikni R.
Guðmundur Friðriksson í Þrótt R.
Hlynur Örn Hlöðversson til Njarðvíkur á láni
Kristinn Jónsson í KR
Martin Lund Pedersen í Næsby
Sólon Breki Leifsson í Vestra
Þórður Steinar Hreiðarsson í Kórdrengina

Sjá einnig:
Hin Hliðin - Davíð Kristján Ólafsson
Gísli Eyjólfs og Arnþór Ari - Vissir um að geta endað ofar en Valur

Leikmenn Breiðabliks sumarið 2018:
1 Gunnleifur Gunnleifsson (m)
2 Kolbeinn Þórðarson
4 Damir Muminovic 
5 Elfar Freyr Helgason
6 Aron Kári Aðalsteinsson
7 Jonathan Hendrickx
8 Arnþór Ari Atlason
9 Hrvoje Tokic
10 Oliver Sigurjónsson
11 Gísli Eyjólfsson
12 Ólafur Íshólm Ólafsson (m)
14 Óskar Jónsson
15 Davíð Kristján Ólafsson 
16 Guðmundur Böðvar Guðjónsson
17 Sveinn Aron Guðjohnsen
18 Willum Þór Willumsson
19 Aron Bjarnason
21 Viktor Örn Margeirsson
24 Elías Rafn Ólafsson (m)
25 Davíð Ingvarsson
27 Arnór Gauti Ragnarsson
28 Alexander Helgi Sigurðarson
30 Andri Rafn Yeoman
32 Karl Friðleifur Gunnarsson
44 Gunnar Geir Baldursson
45 Brynjólfur Darri Willumsson
80 Andri Fannar Baldursson

Leikir Breiðabliks 2018:
28.apríl Breiðablik – ÍBV
7.maí FH – Breiðablik
13.maí Breiðablik – Keflavík
17.maí KR – Breiðablik
22.maí Breiðablik – Víkingur R.
27.maí Valur – Breiðablik
4.júní Breiðablik – Stjarnan
9.júní Grindavík – Breiðablik
13.júní Breiðablik – Fylkir
1.júlí KA – Breiðablik
7.júlí ÍBV - Breiðablik
16.júlí Breiðablik – Fjölnir
22.júlí Breiðablik – FH
30.júlí Keflavík – Breiðablik
7.ágúst Breiðablik – KR
13.ágúst Víkingur R. – Breiðablik
20.ágúst Breiðablik – Valur
27.ágúst Stjarnan – Breiðablik
2.september Breiðablik – Grindavík
16.september Fylkir – Breiðablik
23.september Fjölnir – Breiðablik
29.september Breiðablik – KA

Spámennirnir: Arnar Daði Arnarsson, Elvar Geir Magnússon, Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson, Hafliði Breiðfjörð, Magnús Már Einarsson, Magnús Þór Jónsson og Tryggvi Guðmundsson.
Athugasemdir
banner
banner