Achraf Hakimi hefur engan áhuga á því að kveðja Inter Milan í sumar þó að önnur stórlið hafi áhuga á hans þjónustu.
Achraf Hakimi hefur engan áhuga á því að kveðja Inter Milan í sumar þó að önnur stórlið hafi áhuga á hans þjónustu.
Hakimi er afar eftirsóttur bakvörður en hann hefur staðið sig frábærlega með Inter sem er nálægt því að vinna deildina á Ítalíu.
„Liðið sem ég hreifst mest af var Inter og ég sé vaxandi verkefni hérna," sagði Hakimi við La Repubblica.
„Það er heiður að vera hluti af liðinu og nýja merkinu því það er horft til framtíðarinnar, við getum byggt hana upp saman."
„Ég vonast til að vera hérna í langan tíma, ég er hæstánægður.
Athugasemdir