Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   sun 18. apríl 2021 10:40
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Valverde í einangrun - Varnarlína Real þunnskipuð
Valverde gegn Mane á miðvikudag
Valverde gegn Mane á miðvikudag
Mynd: EPA
Getafe tekur á móti Spánarmeisturum Real Madrid í dag. Real Madrid er í harðri toppbaráttu við Barcelona og Atletico Madrid.

Varnarlína liðsins er orðin ansi þunnskipuð og leysti Federico Valverde stöðu hægri bakvarðar gegn Liverpool í liðinni viku.

Valverde er nú kominn í einangrun þar sem hann hafði umgengst aðila sem nú hefur greinst með Covid-19 veiruna. Sex aðrir varnarmenn Real eru fjarri góðu gamni þessa stundina.

Sergio Ramos, Raphael Varane, Lucas Vazquez, Dani Carvajal og Ferland Mendy eru ekki klárir í slaginn. Nacho Fernandez tekur út leikbann í leiknum í kvöld.

Líklegt þykir að Marcelo leysi stöðu vinstri bakvarðar í kvöld. Eder Militao verður að öllum líkindum í miðvarðarstöðunum og Alvaro Odriozola kemur sennilega inn í hægri bakvörðinn.

Níu dagar eru í leik Real og Chelsea í Meistaradeild Evrópu.
Athugasemdir
banner
banner