Fotbolti.net
18.05.18 - 22:08
Sverrir Örn Einarsson

Logi: Tókst illa upp í flestu

Auglýsing
Logi Ólafsson þjálfari Víkings

Logi Ólafsson þjálfari Víkings

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Einar Ásgeirsson

Það var svekkur Logi Ólafsson þjálfari Víkinga sem mætti í viðtal við fréttaritara Fótbolta.net eftir 0-1 tap Víkinga fyrir Grindavík á heimavelli í kvöld.
„Ég held við hefðum þurft að vera betri á flestum sviðum fótboltans. Við fórum að gera hlutina öðruvísi en hefur skilað okkur góðum leikjum hérna í upphafi og okkur tókst bara illa upp í flestu“.

Víkingar voru löngum stundum undir í baráttunni úti á velli sem hefur einmitt skilað þeim góðum árangri í upphafi mótsins.

„Við höfum margoft sagt að ef við vinnum ekki baráttuna inn á vellinum þá eru meiri líkur á því að við töpum leiknum og ég held að það hafi haft stór áhrif á leikinn í dag“.

Víkingar fengu á dögunum mikin liðsstyrk þegar landsliðsmaðurinn Kári Árnason gerði samning við félagið og mun að hann koma til móts við liðið að HM loknu.

„Ég er mjög bjartsýnn á að hann muni geta hjálpað okkuð mikið að búa til gott hugarfar og að það sé í hverjum einasta leik en ekki bara stundum“.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.