Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   mið 18. maí 2022 06:00
Ívan Guðjón Baldursson
Everton framlengir við Begovic (Staðfest)
Mynd: Heimasíða Everton
Bosníski markvörðurinn Asmir Begovic mun vera áfram hjá Everton á næstu leiktíð eftir að félagið nýtti ákvæði í samningi hans til að framlengja um eitt ár.

Begovic er 34 ára varamarkvörður fyrir Jordan Pickford og hefur spilað sex leiki á yfirstandandi tímabili, þar af tvo í ensku úrvalsdeildinni. Í öðrum þeirra hélt hann hreinu gegn Newcastle en í hinum skoraði Aston Villa þrisvar hjá honum.

Everton mun þó ekki endilega spila í efstu deild á næstu leiktíð þó að útlitið sé ansi bjart eftir frábær úrslit úr erfiðum leikjum.

Lærisveinar Frank Lampard eru tveimur stigum fyrir ofan Burnley í fallsæti og einu stigi fyrir ofan Leeds sem er búið að spila einum leik meira.

Begovic hefur meðal annars leikið fyrir Portsmouth, Stoke, Chelsea og AC Milan á sautján ára ferli. Hann gekk í raðir Everton á frjálsri sölu í fyrrasumar.


Athugasemdir
banner
banner
banner