Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mið 18. maí 2022 07:20
Ívan Guðjón Baldursson
Joe Gomez yfirgaf St. Mary's á hækjum
Mynd: EPA

Joe Gomez kemur væntanlega ekki meira við sögu með Liverpool á þessari leiktíð eftir að hann fór meiddur af velli gegn Southampton í gær.


Liverpool hvíldi marga lykilmenn og því fékk Joe Gomez tækifæri í hægri bakverði í fjarveru Trent Alexander-Arnold.

Hann þurfti þó að fara meiddur af velli í hálfleik en það sakaði ekki því Liverpool endaði á að vinna leikinn og á enn möguleika á Englandsmeistaratitlinum.

Liverpool á eftir að spila tvo leiki á tímabilinu, lokaleikinn í úrvalsdeildinni og úrslitaleik Meistaradeildarinnar.

Jürgen Klopp vonast til að meiðslin séu ekki slæm en Gomez yfirgaf St. Mary's á hækjum og í hlífðarstígvéli á vinstri fæti.


Athugasemdir
banner
banner