Fotbolti.net
18.06.20 - 21:43
Arnar Helgi Magnússon

Steini Halldórs: Titilbaráttan er ekki búin

Auglýsing
Steini Halldórs: Titilbaráttan er ekki búin
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hertz
Þorsteinn Halldórsson, þjálfari Breiðabliks, var að vonum sáttur með 0-2 sigur sinna stelpna gegn Selfossi í Pepsi Max-deildinni í kvöld.

„Þrjú stig hérna á móti góðu liði í erfiðum leik. Ég er bara mjög sáttur," sagði Þorsteinn eftir leikinn í kvöld.
„Ég var bara sáttur við vinnuframlagið. Ég var sáttur við varnarleikinn heilt yfir þó að það hafi legið aðeins á okkur í seinni hálfleik, þær sköpuðu ekkert færi. Við vorum þolinmóð varnarlega, skipulögð og öguð. Mér fannst allt liðið sinna varnarleiknum vel í dag."

Breiðablik komst yfir strax á þriðju mínútu leiksins þegar Agla María Albertsdóttir setti boltann í netið.

„Við vorum sterkari í fyrri hálfleik og mér fannst við geta skorað fleiri. Þetta var bara jafn leikur og þetta datt okkar megin í dag."

Þorsteinn segist ekkert pæla í því hvort að Selfoss geti orðið Íslandsmeistari.

„Mér er eiginlega alveg sama. Það skiptir okkur engu máli. Þetta er gott lið, besta Selfoss-liðið í nokkur ár. Þær setja þetta bara fram eins og þær vilja, það skiptir okkur engu máli. Titilbaráttan er ekki búin nema að þetta verði eins og í fyrra, þá er þetta búið."

Viðtalið við Þorstein Halldórsson má sjá hér að ofan.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.