Miðjumaðurinn Max Power er enginn aftur í raðir Wigan Athletic í ensku þriðju deildinni.
Þetta var staðfest í gær en Power er leikmaður sem stuðningsmenn Wigan þekkja vel til.
Hann gerði garðinn frægan með Wigan frá 2015 til 2019 og spilaði 42 leiki í næst efstu deild tímabilið 2016-2017.
Árið 2018 ákvað Power að færa sig yfir til Sunderland og lék 127 leiki fyrir liðið á þremur árum og spilaði því stórt hlutverk.
Wigan tilkynnti komu Power í gær og mun þessi 27 ára gamli leikmaður leika með liðinu á næsta tímabili.
Athugasemdir