Anna María líklega með slitið krossband

Anna María Baldursdóttir.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Anna María Baldursdóttir.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Anna María Baldursdóttir, fyrirliði Stjörnunnar, spilar líklega ekki meira á tímabilinu vegna meiðsla.
Hún fór meidd af velli í síðasta leik gegn Breiðabliki og er líklega með slitið krossband. Hún á samt sem áður eftir að fara í myndatöku til að staðfesta það alveg.

Það er mikið högg fyrir Stjörnuna, ef satt reynist, þar sem liðið hefur verið á mjög góðu róli í Bestu deildinni að undanförnu.
Anna María, sem er 31 árs, hefur verið fyrirliði og lykilmaður fyrir Stjörnuna í mörg ár. Hún varð í fyrra aðeins tíunda konan í sögunni til að spila yfir 230 leiki í efstu deild.
Stjarnan mætir Fram í næsta leik í Bestu deild kvenna eftir helgi. Stjarnan hefur unnið þrjá leiki í röð og situr í þriðja sæti.