Lið og leikmaður 9. umferðar - Alvöru sögulína í Breiðholti

Elfar Árni Aðalsteinsson.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Djorde Vladisavljevic.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Magnús Þórðarson fagnar.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Ívan Óli Santos.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Elfar Árni Aðalsteinsson.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Botnlið Völsungs vann mjög óvæntan 2-1 sigur gegn Njarðvík í 9. umferð Lengjudeildarinnar. Það er því vel við hæfi að leikmaður umferðarinnar komi frá Húsavíkurliðinu.
LEIKMAÐUR UMFERÐARINNAR
Elfar Árni Aðalsteinsson - Völsungur
Hann er svo seigur og gerir svo mikið fyrir Völsungsliðið. Skoraði sigurmarkið þegar hann stýrði boltanum upp í þaknetið. Þessi 35 ára framherji hóf tímabilið sem þjálfari Völsungs en getur nú einbeitt sér að leikmannahlutverkinu eftir að Spánverjinn Borja Martin Iglesias tók við stjórnartaumunum.
LEIKMAÐUR UMFERÐARINNAR
Elfar Árni Aðalsteinsson - Völsungur
Hann er svo seigur og gerir svo mikið fyrir Völsungsliðið. Skoraði sigurmarkið þegar hann stýrði boltanum upp í þaknetið. Þessi 35 ára framherji hóf tímabilið sem þjálfari Völsungs en getur nú einbeitt sér að leikmannahlutverkinu eftir að Spánverjinn Borja Martin Iglesias tók við stjórnartaumunum.

Völsungur á fleiri fulltrúa í úrvalsliðinu; Juan Guardia og Arnar Pálmi Kristjánson fá þar einnig sæti.
Þróttur er áfram á toppi deildarinnar eftir 2-0 sigur gegn HK í stórleik umferðarinnar. Magnús Þórðarsson skoraði annað mark Þróttar og Aron Snær Ingason var sífellt ógnandi. Sigurvin Ólafsson er þjálfari umferðarinnar.
Fylkir er í öðru sæti en liðið vann 1-0 útisigur gegn Grindavík. Orri Sveinn Segatta var maður leiksins og Ólafur Kristófer Helgason var frábær í markinu.
Leiknir vann þriðja leik sinn í röð þegar liðið lagði Vestra 1-0 í Breiðholti. Djorde Vladisavljevic var valinn maður leiksins.
Við tökum leik Vestra gegn Ægi með í val þessarar umferðar þó hann sé tæknilega í 15. umferð. Hann var spilaður í gær til að rýmka fyrir Evrópuverkefnum Vestra. Ibrahima Balde var maður leiksins í 3-2 sigri Vestra. Gunnar Jónas Hauksson er einnig í úrvalsliðinu.
Ívan Óli Santos var hetja ÍR sem vann Gróttu 3-2. Eftir rúmlega þriggja ára fjarveru frá keppnisleikjum í deild kom hann inn á og skoraði sigurmark leiksins. Alvöru sögulína!

TENGT EFNI
Sáttur Ívan Óli: Ég fór að grenja úr gleði
Leikur Aftureldingar og Ægis var færður til 29. júní vegna bikarævintýris Mosfellinga.
Fyrri úrvalslið:
8. umferð - Sigurður Egill Lárusson - Þróttur
7. umferð - Andi Hoti - Afturelding
6. umferð - Jordan Adeyemo - Ægir
5. umferð - Mattías Kjeld - Grótta
4. umferð - Svavar Örn Þórðarson - HK
3. umferð - Ibrahima Balde - Vestri
2. umferð - Kári Sigfússon - Fylkir
1. umferð - Stefán Þór Pálsson - ÍR

Djorde Vladisavljevic.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Magnús Þórðarson fagnar.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Ívan Óli Santos.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Stöðutafla
| # | Lið | L | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|
| 1 | Þróttur R. | 9 | +11 | 19 |
| 2 | Fylkir | 9 | +3 | 18 |
| 3 | Afturelding | 8 | +8 | 16 |
| 4 | Vestri | 10 | 0 | 16 |
| 5 | Leiknir R. | 9 | +2 | 15 |
| 6 | HK | 9 | 0 | 15 |
| 7 | Grótta | 8 | -2 | 12 |
| 8 | Njarðvík | 9 | +3 | 11 |
| 9 | ÍR | 9 | -5 | 10 |
| 10 | Grindavík | 8 | -3 | 7 |
| 11 | Ægir | 9 | -6 | 7 |
| 12 | Völsungur | 9 | -11 | 5 |





