Fotbolti.net
18.06.26 - 09:40
Kári Snorrason

Stórt að fá fallbyssu eins og Jónatan til baka - Lengra í Patrick og Kidda

Jónatan Ingi.

Jónatan Ingi.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Jónatan Ingi Jónsson, leikmaður Vals, kom inn á í sínum fyrsta leik í Bestu deildinni þetta sumarið á þriðjudag er Valur tapaði 1-0 gegn ÍA.

Jónatan sleit liðband í ökkla og hlaut beinmar í bikarleik gegn KR í byrjun apríl.

Þessi 27 ára kantmaður hefur verið lykilmaður Vals undanfarin ár og var Hermann Hreiðarsson, þjálfari liðsins, spurður út í endurkomu Jónatans í viðtali eftir leik.
Lestu um leikinn: ÍA 1 - 0 Valur
„Þetta er risastórt, við vitum það alveg og þetta er einn besti leikmaður deildarinnar, að fá svona fallbyssu til baka og hann komst í gegnum þetta. Það var stórt og vonandi verður framhald að því,“ sagði Hermann.

Lengra í Kidda og Patrick
Kristinn Freyr Sigurðsson og Patrick Pedersen hafa verið frá til lengri tíma, Hermann segir aðeins lengra í þá. „Þeir verða ekki alveg klárir á næstunni en það styttist þó alltaf í þá.“

Patrick hafði sjálfur stefnt að því að koma til baka í lok júní, mun það ganga eftir? „Ég hugsa að lok júní sé full snemmt. Við tökum þetta viku eftir viku og sjáum hvernig hann braggast.“
Markahæstur í fyrra.

Markahæstur í fyrra.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hemmi eftir leik: Hrikalega illa farið með góðar stöður

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.