Fotbolti.net
18.06.26 - 11:36
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Rúnar fékk hugdettu skömmu fyrir leik - „Fannst ég hafa gleymt einu atriði"

Rúnar fékk hugdettu skömmu fyrir leik - „Fannst ég hafa gleymt einu atriði"
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

„Við teiknuðum upp eina litla sóknarfærslu bara rétt fyrir leik og hún virkaði bara svona svaka­lega vel því þeir voru að reyna pressa okkur og setja hann upp í stóru mennina okkar," sagði Rúnar Kristinsson, þjálfari Fram, í viðtali við Árna Gísla Magnússon á SÝN Sport eftir leikinn gegn KA á mánudagskvöld.

Fram sigraði KA á Akureyri, 3-4 lokatölur, og var þetta þriðji sigur Fram í röð.

Þjálfarinn var spurður nánar út í þessa færslu í dag.
Sterkastur í 10. umferð - Tek hattinn ofan
TENGT EFNI

Sterkastur í 10. umferð - Tek hattinn ofan

Lestu um leikinn: KA 3 - 4 Fram
Af hverju var hún teiknuð upp rétt fyrir leik? Var það eitthvað í liði KA sem þú sást eða vildir þú að strákarnir hefðu ekki tíma til að gleyma henni?

„Þetta var eiginlega bara eitthvað sem ég hafði ekki haft tíma í eða gleymt að gera fyrr. Þetta skaust upp í kollinn á mér sem leið fyrir okkur. Það er svo ofboðslega margt sem maður vill fara í gegnum fyrir leik, maður teiknar upp einhver taktísk atriði eða varnar/sóknarleik og föst leikatriði. Oft er þetta svipað, en stundum kemur eitthvað nýtt upp í hugann. Það getur gerst líka á síðustu stundu. Mér fannst ég hafa gleymt einu atriði í undirbúningnum, þannig ég tók þá helstu sem þetta snerist um; þetta snýr að einföldum færslum og einfaldar sendingar á ákveðna staði. Ég labbaði í gegnum þetta með nokkrum inn í klefa, talaði við menn til að gefa þeim valmöguleika. Þú getur ekki teiknað upp hverja einustu sókn og hverja einustu færslu, en það er hægt að gefa mönnum einfaldar leiðir ef menn lenda í vandræðum í ákveðnum stöðum. Þetta var ein leið sem ég þurfti að setja nokkra inn í."

Í grunninn, snerist þetta um að vinna í kringum framherjann Atla Þór Jónasson?

„Vinna í kringum Atla og Vuk, og líka ógna inn fyrir vörnina. Þú veist ekki hvort að liðin mæta í hápressu eða leggjast neðar. Þú þarft að vera með einhverjar leiðir fyrir hvort heldur sem er. Í nútímafótbolta eru allir að reyna spila sig í gengum varnir andstæðinganna: frá markmanni og upp í gegnum miðjuna. Stundum er hægt að fara í beinni línu og hraðar. Sérstaklega þegar lið koma framar á völlinn á móti manni. Þá er hægt að setja boltann inn fyrir eða í svæðin fyrir framan þá þegar lið fara í hápressu," segir Rúnar.

Fram situr í 3. sæti deildarinnar, liðið mætir næst toppliði Víkings á heimavelli á sunnudagskvöld.
Það gengur vel hjá Fram.

Það gengur vel hjá Fram.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Úr leiknum á mánudag.

Úr leiknum á mánudag.

Canon

Mynd: Sigurður Elefsen

Innkastið - Eru ósigraðir Víkingar óstöðvandi?

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Víkingur R.11+3031
2KR11+1325
3Fram10+1023
4Breiðablik10+716
5ÍA10-315
6Valur11-415
7Stjarnan11-411
8Keflavík10-711
9KA10-410
10ÍBV10-68
11Þór10-196
12FH10-135
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.