Fotbolti.net
18.06.26 - 10:04
Kári Snorrason

Sölvi og Gylfi ræða Evrópudráttinn - „Klárlega enginn draumadráttur“

Eftir sigurinn á KR.

Eftir sigurinn á KR.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Víkingur mætir ungversku meisturunum FC Györ í fyrstu umferð forkeppni Meistaradeildarinnar. Dregið var á þriðjudag en um er að ræða sterkasta mögulega andstæðing sem Víkingar hefðu getað fengið.

Fyrri leikurinn fer fram í Víkinni 7. eða 8. júlí, seinni leikurinn fer fram í Ungverjalandi viku síðar.

Sigurvegarinn úr einvíginu spilar síðan við ísraelska liðið Hapoel Be'er Sheva. Þá mætir tapliðið KÍ/Klaksvík frá Færeyjum eða Atert Bissen frá Lúxemborg í 2. umferð í forkeppni Sambandsdeildarinnar.
Víkingur mætir ungversku meisturunum - Sterkasti mögulegi andstæðingurinn
TENGT EFNI

Víkingur mætir ungversku meisturunum - Sterkasti mögulegi andstæðingurinn

Sölvi Geir Ottesen, þjálfari Víkings, var spurður, í viðtali eftir 2-0 sigur á KR, hvernig honum litist á dráttinn.

„Klárlega ekki drátturinn sem við vorum búnir að dreyma um. Það er eins og það er. Nú er búið að draga okkur á móti þeim og þá er bara að horfa á þetta með jákvæðum augum.“

„Þetta er hörku andstæðingur sem við getum farið að mæla okkur við. Við höfum mætt hörku andstæðingum í Evrópu og gengið vel. Ég hlakka til að takast á við þetta stóra verkefni. Þetta er gleðiefni fyrst við fengum þá,“
sagði Sölvi.

Gylfi spenntur fyrir verkefninu
Þá var Gylfi Þór Sigurðsson jafnframt spurður um dráttinn eftir sigurinn á KR. „Þetta er skemmtilegt, það er gaman að spila á móti bestu liðunum. Þetta er gott próf. Við spilum fyrri leikinn heima, náum vonandi í góð úrslit og sjáum til hvað gerist úti,“ sagði Gylfi.

Er Víkingur með fyrirframgefin markmið í Evrópukeppnum?
„Nei nei, við viljum reyna bæta það sem liðið gerði í fyrra og hitt í fyrra. Það væri auðvitað draumur. Það er markmiðið hjá klúbbnum - reyna bæta sig og ýta okkur lengra. Við erum með frábæran hóp þannig vonandi er það hægt,“ sagði Gylfi að lokum.
Gylfi vinsæll að leik loknum.

Gylfi vinsæll að leik loknum.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Víkingur vann KR í toppslag á þriðjudaginn.

Víkingur vann KR í toppslag á þriðjudaginn.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Sölvi: Langt frá því að fara horfa í töfluna núna

Gylfi: Sneggstu samningsviðræður ferilsins

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.