Fotbolti.net
18.07.18 - 20:57
Hafliði Breiðfjörð
Í samstarfi við styrktaraðila

Helsti sparkspekingur Noregs: Eins og dómarinn hafi fengið peninga

Rosenborg fagnar sigrinum í kvöld.

Rosenborg fagnar sigrinum í kvöld.

Canon

Mynd: Richard Sagen/Adresseavisen

Jesper Mathisen hjá TV2 er harðorður í garð dómara leiks Rosenborg og Vals í Meistaradeildinni í kvöld og segir engu líkara en að búlgarski dómarinn Stefan Apostolov hafi fengið peninga til að tryggja ákveðin úrslit í leiknum.
Búlgarinn dæmdi þrjár glórulausar vítaspyrnur í leiknum, tvær á Val og eina á Rosenborg og tryggði norska liðið þannig áfram í keppninni.

„Þvílíkur sirkus þessi dómgæsla. Þetta er eins og grínþáttur,\" skrifar Mathiesen á Twitter í kvöld.

„Að horfa upp á þessa vítaspyrnudóma í Lerkendal í kvöld! Þetta er líklega það versta sem ég hef séð í dómgæslu, í leikjum sem ekki er búið að ákveða úrslitin í fyrirfram. Farsi í fótboltaleik og með heppni fer RBK áfram.\"

„Ef það hefði ekki verið norskt lið í þessum leik þá værum við að tala um hagræðingu úrslita núna. Í þessum leik leit einfaldlega út fyrir að dómararnir hafin fengið peninga fyrir að koma leiknum í fleiri en 3,5 mörk. Skelfileg dómgæsla.\"


For et sirkus. For ei dømming. For en komedie. For noen straffespark som blir delt ut på Lerkendal i kveld! Det er kanskje det verste jeg har sett av dømming, i kamper som ikke har vært fikset på forhånd. Parodi av en fotballkamp, og heldigvis går RBK videre!

— Jesper Mathisen (@jespermathisen) July 18, 2018


Hadde det ikke vært et norsk lag involvert i denne kampen hadde vi snakket høyt om kampfiksing. I denne kampen har det rett og slett sett ut som at dommerteamet har fått penger for å dømme inn over 3.5 mål. Skremmende dømming🚨🚨🚨

— Jesper Mathisen (@jespermathisen) July 18, 2018

Dómarateymið búlgarska í kvöld.

Dómarateymið búlgarska í kvöld.

Canon

Mynd: Richard Sagen/Adresseavisen

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.