Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   sun 18. júlí 2021 12:31
Brynjar Ingi Erluson
Ballo-Toure til Milan (Staðfest)
Fode Ballo-Tour er mættur til Milan
Fode Ballo-Tour er mættur til Milan
Mynd: Heimasíða Milan
AC Milan er búið að ganga frá kaupum á Fode Ballo-Toure frá Mónakó en hann gerir fimm ára samning við ítalska félagið.

Ballo-Toure er 24 ára gamall vinstri bakvörður og er fæddur og uppalinn í Frakklandi.

Hann spilaði fyrir yngri landslið Frakklands en valdi að spila fyrir Senegal á þessu ári.

Milan hefur verið í viðræðum við Mónakó síðustu daga um kaup á honum en í dag voru kaupin staðfest.

Félagið greiðir 4 milljónir evra og gerir hann fimm ára samning við Milan.

Hann mun veita Theo Hernandez samkeppni um vinstri bakvarðarstöðuna.
Athugasemdir
banner
banner
banner