Arsenal endurnýjar áhuga á Luiz - Man Utd reynir við Todibo - Tottenham vill Sudakov
   sun 18. júlí 2021 07:00
Victor Pálsson
Nmecha seldur til Wolfsburg (Staðfest)
Mynd: Getty Images
Manchester City er búið að selja framherjann Lukas Nmecha til Wolfsburg en frá þessu var greint um helgina.

Nmecha er 22 ára gamall sóknarmaður en hann var í láni hjá Anderlecht í Belgíu á síðustu leiktíð.

Þar skoraði Nmecha 21 mark í 41 leikjum fyrir belgíska félagið og vakti þar með athygli stærri liða í Evrópu.

Wolfsburg tók eftir frammistöðu leikmannsins og hefur nú tryggt sér hans þjónustu endanlega.

Nmecha kom til Man City sem krakki en hann var hjá félaginu alveg frá árinu 2007.

Nmecha þekkir til Wolfsburg en hann var þar í láni árið 2019.
Athugasemdir
banner
banner