Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   sun 18. júlí 2021 07:30
Victor Pálsson
Tavares skoraði í fyrsta leiknum fyrir Arsenal
Mynd: Getty Images
Nuno Tavares lék sinn fyrsta leik fyrir Arsenal í gær sem spilaði við Rangers í æfingaleik.

Tavares gekk nýlega í raðir Arsenal frá Benfica en hann kostaði enska liðið um átta milljónir punda.

Bakvörðurinn byrjaði afar vel með sínu nýja liði og skoraði fyrra mark Arsenal í gær í leik sem lauk með 2-2 jafntefli.

Arsenal var 2-1 undir þegar 83 mínútur voru komnar á klukkuna en þá jafnaði Eddie Nketiah leikinn.

Næsti leikur Arsenal er þann 25. júlí og þá gegn Inter Milan í öðrum æfingaleik.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner