Fotbolti.net
18.08.26 - 05:55
Brynjar Ingi Erluson

Ísland í dag - Haukar geta skráð sig í toppbaráttuna og fellt Tindastól

Sara Björk og Haukar heimsækja Tindastóll sem gæti fallið niður um deild

Sara Björk og Haukar heimsækja Tindastóll sem gæti fallið niður um deild

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Þrír leikir eru spilaðir í 14. umferð Lengjudeildar kvenna í dag og kvöld.
Selfoss getur komist upp í annað sæti þegar liðið tekur á móti FHL á JÁVERK-vellinum klukkan 13:30 í dag.

Selfyssingar eru í 4. sæti með 22 stig, aðeins einu stigi frá öðru sætinu. FHL er í 8. sæti með 17 stig.

Keflavík tekur á móti KR, sem er einmitt í öðru sæti, en Keflvíkingar sitja í því sjöunda með 17 stig. Tap KR myndi nánast færa Gróttu titilinn.

Botnlið Tindastóls fær þá Hauka í heimsókn. Sara Björk Gunnarsdóttir og stöllur hennar komust loksins aftur á sigurbraut í síðustu umferð, þar sem Sara skoraði sitt fyrsta mark frá heimkomunni.

Haukar geta komist upp í eitt af þremur efstu sætunum með sigri, en þurfa þó hagstæð úrslit úr öðrum leikjum. Liðið er í 6. sæti með 21 stig.

Tindastóll verður hins vegar að vinna, annars er fall liðsins úr deildinni staðfest.

Leikir dagsins:

Lengjudeild kvenna
13:30 Selfoss-FHL (JÁVERK-völlurinn)
18:00 Keflavík-KR (HS Orku völlurinn)
18:00 Tindastóll-Haukar (Sauðárkróksvöllur)

5. deild karla - B-riðill
20:00 RB-Kría (Nettóhöllin)
20:00 Léttir-BF 108 (Þarfaþingsvöllurinn)

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Grótta14+2232
2KR13+1323
3HK14+523
4Selfoss13+722
5ÍA14+721
6Haukar13-321
7Keflavík13+917
8FHL13017
9Völsungur14-512
10Tindastóll13-553
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.