Fotbolti.net
18.09.17 - 21:51
Valgerður Stella Kristjánsdóttir

Hallbera: Maður vill samt alltaf meira

Auglýsing
Hallbera Guðný átti þrjár stoðsendingar í kvöld

Hallbera Guðný átti þrjár stoðsendingar í kvöld

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hertz
„Já já svona bæði og við klúðruðum líka ansi mörgum færum í dag, en ég meina 8-0 er alltaf ásættanlegt\" sagði Hallbera aðspurð um hvort hún væri sátt eftir leikinn.
„Maður var alltaf með það á bak við eyrað að markatalan skipti máli en ég held að við getum ekki kvartað þannig séð, við höldum hreinu og skorum fullt af mörkum. Við bara verðum að halda áfram á þessari braut á móti þeim liðum sem eru slakari.\"

Íslenska liðið setti tóninn strax í upphafi og skoraði fyrsta mark leiksins eftir aðeins tveggja mínútna leik. Þetta mark hafði sitt að segja um framhald leiksins að mati Hallberu: „Já, það er alltaf mjög gott þegar lið liggja svona aftarlega að brjóta þau strax niður.\"

Leikurinn í kvöld var fyrsti leikur Íslands eftir EM, leikmenn voru að vonum glaðir að fá flottan sigur eftir viss vonbrigði þar úti í sumar.

„Það var mjög gott að hrista af sér vonbrigði sumarsins, fullt af fólki á vellinum, það var bara mjög gaman að spila í kvöld, þetta var bara mjög skemmtilegt, ég vona bara að þessi keppni haldi áfram á svipuðum tónum.\"

Nánar er rætt við Hallberu í spilaranum hér að ofan.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.