Kovac orðaður við stjórastól Liverpool - Newcastle vill Gibbs-White - Dewsbury-Hall orðaður við Tottenham
   fös 18. september 2020 09:00
Aksentije Milisic
David James: Arsenal getur unnið deildina
Mynd: Getty Images
David James , fyrrverandi markvörður Liverpool og enska landsliðsins, hefur spáð því að Arsenal muni sigra ensku úrvalsdeildina.

„Ég held að Arteta, með þennan hóp sem hefur mikla hæfileika, geti farið alla leið. Ég sé ekki af hverju þeir ættu ekki að geta það, nema þá að Liverpool og Manchester City tapi jafn fáum stigum og undanfarið," sagði James.

„Það vita allir að það er ekki auðvelt að vinna deildina. Hvað þá að vinna deildina tvisvar. Liverpool hefur átt tvö ótrúleg tímabil og maður spyr sig hvort þeir geti gert svipaða hluti eina ferðina enn."

„Sem áhorfandi þá líkar mér mjög vel við það sem Arteta er að gera og ég sé ekki af hverju hann ætti ekki að geta farið alla leið með Arsenal."
Athugasemdir
banner
banner