„Æðislegt að við höfum fengið þennan leik á okkar heimavelli"

Haddi og Eiður Smári Guðjohnsen stýra KA saman.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Ef horft er í síðustu 4-5 leiki þá finnst mér frammistaðan hafa verið góð en stigin ekki nógu mörg

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hrannar Björn og Ásgeir koma með mikla reynslu inn í hópinn hjá KA.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Pakkað af stuðningsmönnum við hliðarlínuna í síðasta leik KA og Þórs.

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Úr leik KA og Þórs í lok júlí.

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Haddi og Eiður Smári Guðjohnsen stýra KA saman.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Eitt stig skilur liðin að, Þór er með stigi meira en KA fyrir leikinn. Fótbolti.net ræddi við Hallgrím Jónasson, Hadda, sem er annar af aðalþjálfurum KA.

Gríðarlega mikið undir í bæjarslagnum - „Saman munum við halda okkur í efstu deild"
Jafnmikil pressa á liðunum
Þið eruð stigi á eftir, er meiri pressa á ykkur fyrir leikinn?
„Nei, alls ekki. Bæði liðin eru í þessari stöðu, það eru fjórir leikir eftir og munar einu stigi. Ég held það sé jafnmikil pressa á liðunum."
„Við erum búnir að spila tvisvar við Þór í sumar, unnum annan leikinn og okkur fannst við eiga að vinna hinn en náðum bara ekki að skora. Það er pressa á bæði lið og verður gaman að sjá hvernig liðin díla við það á morgun. Það er mikil reynsla í okkar liði sem hefur farið í marga stóra leiki. Ég er ótrúlega spenntur fyrir þessu."
Vantaði að klára færin í síðasta leik gegn Þór
Í síðasta leik á móti Þór var byrjun KA öflug en lokatölur urðu 0-0. Voru mörkin það eina sem vantaði?
„Ég held að við höfum fengið 3-4 stórkostleg færi í leiknum, það sem vantaði upp á var að skora. Leikurinn jafnaðist í seinni hálfleiknum, Þórsararnir breyttu aðeins sinni nálgun í hálfleik og þá jafnaðist þetta. Því miður vantaði gæðin í að klára færin og því fór 0-0."
Frammistaðan góð í síðustu leikjum en stigin of fá
Finnst þér vera framþróun á liðinu frá þeim leik?
„Já, við erum búnir að fá einhverja leikmenn til baka og já, mér finnst við vera á betri stað núna en fyrir svolitlu síðan. Ef horft er í síðustu 4-5 leiki þá finnst mér frammistaðan hafa verið góð en stigin ekki nógu mörg."
„Þetta veltur svolítið á því að við þurfum að vera nógu svalir og rólegir á því þegar við komumst í afgerandi stöður - til að klára okkar. Á sama tíma þurfum við að verjast vel og okkur hefur tekist það á móti Þór. Þeir sem halda kúlinu og klára lykilaugnablik vel standa oftast uppi sem sigurvegarar í jöfnum nágrannaslögum."
Hrannar og Ásgeir gefa liðinu helling
Ertu að endurheimta einhverja fleiri úr meiðslum, eru Jóan Símun og Oliver að nálgast endurkomu?
„Þeir eru í langtímameiðslum og koma ekki til baka á næstunni. En Hrannar Björn og Ásgeir eru að æfa með okkur og hafa báðir fengið mínútur. Þeir gefa liðinu helling. Þó að mínúturnar séu ekki margar þá búa þeir yfir mikilli reynslu og eru frábærir karakterar. Þeir eru komnir til baka og Kári Gautason er að snúa til baka eftir að hafa tognað í ökkla á móti Fram."
Hjálpar að spila á nýja vellinum með fleiri áhorfendur
Er auka krydd að þetta sé á nýja vellinum?
„Það gefur okkur auka, það verða fleiri áhorfendur á leiknum en á öðrum heimaleikjum og það mun klárlega hjálpa okkur. Það er gaman að hafa nágrannaslag þar sem fullt af fólki mætir. Maður nýtur þess að taka þátt í slíkum viðburði."
„Auðvitað væri aðeins skemmtilegra ef við værum að keppa á toppnum eða um miðja deild við Þórsarana, en staðan er ekki þannig. Þetta verður ótrúlega spennandi og gaman að taka þátt í þessu," segir Haddi.

Ef horft er í síðustu 4-5 leiki þá finnst mér frammistaðan hafa verið góð en stigin ekki nógu mörg

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hrannar Björn og Ásgeir koma með mikla reynslu inn í hópinn hjá KA.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Pakkað af stuðningsmönnum við hliðarlínuna í síðasta leik KA og Þórs.

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Úr leik KA og Þórs í lok júlí.

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson
Stöðutafla
| # | Lið | L | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|
| 1 | Stjarnan | 23 | -6 | 31 |
| 2 | Valur | 23 | -3 | 30 |
| 3 | FH | 23 | -9 | 24 |
| 4 | Þór | 23 | -31 | 21 |
| 5 | KA | 23 | -16 | 20 |
| 6 | ÍBV | 23 | -15 | 18 |

