18.09.26 - 17:15
Elvar Geir Magnússon
De Zerbi: Þeir þrír verða allir með í leiknum

Roberto De Zerbi.

Mynd: EPA

Dejan Kulusevski.

Mynd: EPA

Roberto De Zerbi.

Mynd: EPA
Tottenham tekur á móti Aston Villa á morgun í síðdegisleiknum í ensku úrvalsdeildinni.
Tottenham hefur átt brösuga byrjun undir Roberto De Zerbi en fær gott tækifæri til að koma sér í gang gegn Aston Villa. Villa er aðeins með eitt stig en Tottenham tvö og hefur liðið enn ekki skorað mark.
De Zerbi greindi frá því á fréttamannafundi í morgun að Pedro Porro, Sandro Tonali og James Maddison væru allir leikfærir fyrir leikinn á morgun.

TENGT EFNI
England um helgina - Síðasta umferðin fyrir þriggja vikna landsleikjahlé
Porro hefur misst af síðustu tveimur leikjum vegna vöðvameiðsla, Tonali missti af tapleiknum gegn Liverpool í deildabikarnum eftir að hann fékk högg í markalausa jafnteflinu gegn Everton en Maddison kom inn af bekknum á Anfield.
„Þeir þrír eru allir tilbúnir að vera í hóp en við þurfum að fylgjast vel með stöðunni á líkamlegu ástandi þeirra," segir De Zerbi.
Þá er sænski landsliðsmaðurinn Dejan Kulusevski mættur aftur til æfinga en hann hefur ekki spilað síðan í maí 2025 vegna flókinna hnémeiðsla. Ekki er þó alveg ljóst hvenær hann muni snúa aftur á keppnisvöllinn.

Premier league - karlar
| # | Lið | L | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|
| 1 | Arsenal | 11 | +10 | 28 |
| 2 | Brighton | 11 | +17 | 22 |
| 3 | Man City | 11 | +8 | 22 |
| 4 | Liverpool | 11 | +8 | 21 |
| 5 | Bournemouth | 11 | +4 | 18 |
| 6 | Brentford | 11 | +9 | 17 |
| 7 | Leeds | 11 | +5 | 17 |
| 8 | Chelsea | 11 | 0 | 16 |
| 9 | Everton | 11 | -2 | 16 |
| 10 | Tottenham | 11 | +1 | 15 |
| 11 | Hull City | 11 | +2 | 14 |
| 12 | Aston Villa | 11 | -3 | 14 |
| 13 | Newcastle | 11 | -3 | 13 |
| 14 | Coventry | 11 | -8 | 12 |
| 15 | Fulham | 11 | -2 | 11 |
| 16 | Ipswich Town | 11 | -7 | 11 |
| 17 | Nott. Forest | 11 | -6 | 9 |
| 18 | Sunderland | 11 | -9 | 9 |
| 19 | Man Utd | 11 | -9 | 8 |
| 20 | Crystal Palace | 11 | -15 | 7 |