Fotbolti.net
18.09.26 - 11:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Hefur spilað meira en hann bjóst við hjá Víkingi - „69 er bara flott tala"

Ég er sáttur með mitt hlutverk og hef spilað meira en ég bjóst við

Ég er sáttur með mitt hlutverk og hef spilað meira en ég bjóst við

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

„Leikurinn leggst bara vel í mig. Við þurfum bara að spila okkar leik og leggja allt í þetta," segir Ármann Ingi Finnbogason, leikmaður Víkings, fyrir stórleik KR og Víkings í Bestu deildinni. Liðin mætast klukkan 14:00 á Meistaravöllum á morgun.

Liðin mættust nokkuð nýlega á sama velli og þá skoraði Ármann fyrra mark leiksins.
„Var að æfa nákvæmlega þetta skot í gær“
TENGT EFNI

„Var að æfa nákvæmlega þetta skot í gær“

„Tilfinningin þegar ég horfi til baka er mjög góð og vonandi fær maður að upplifa það aftur á morgun."

Með sigri tryggir Víkingur sér Íslandsmeistaratitilinn.

,Það er auðvitað geggjað að fara inn í svona leik. En bara eins og við förum inn í alla leiki þá ætlum við að vinna hann."

Ármann var keyptur til Víkings í vetur frá ÍA eftir að hafa leikið á láni hjá Grindavík. Hvernig metur hægri kantmaðurinn tímabilið?

„Mér finnst tímabilið hafa gengið mjög vel. Ég er sáttur með mitt hlutverk og hef spilað meira en ég bjóst við. Hefði verið gaman að vera búinn að skora fleiri mörk," segir Ármann sem hefur skorað þrjú mörk í sumar og lagt upp fimm í ellefu byrjunarliðsleikjum í Bestu deildinni. Þegar hann kom til Víkings var slúðrað um að hann gæti farið á láni frá liðinu en hann fór hvergi og hefur verið í hlutverki í besta liði landsins.

Í sumar heyrðist smá slúður um að það væri áhugi á Ármanni erlendis frá, talað var um áhuga úr ensku neðri deildunum.

„Já, ég heyrði að það var einhver áhugi en veit í raun ekkert meira en það. Ég var bara með hugann við Víking."

Ármann Ingi er í treyju númer 69 hjá Víkingi. Hvernig kom það til?

„Það voru í raun engin laus treyju númer sem mig langaði að hafa á treyjunni þannig ég ákvað að vera bara aðeins öðruvísi og valdi 69. Svo er þetta líka bara flott tala."

Hann er 22 ára og er gjaldgengur í U21 landsliðið. Horfði hann í þann hóp fyrir komandi leiki?

„Já, auðvitað horfir maður aðeins í það og það hefði verið geggjað að fá kallið. Ég hef verið ánægður með mína spilamennsku og vonaðist alveg eftir því, en það er bara ekki í mínum höndum."

Einhver skilaboð til stuðningsmanna?

„Bara að mæta á völlinn og styðja okkur! Vonandi verður geggjuð stemning og við getum fagnað saman eftir leik. Áfram Víkingur!" segir Ármann að lokum.
Markinu gegn KR fagnað.

Markinu gegn KR fagnað.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Í treyju númer 69.

Í treyju númer 69.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Vonandi fær maður að upplifa það aftur á morgun

Vonandi fær maður að upplifa það aftur á morgun

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Vonandi verður geggjuð stemning og við getum fagnað saman eftir leik

Vonandi verður geggjuð stemning og við getum fagnað saman eftir leik

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Víkingur R.23+4956
2KR23+2947
3Fram23+1245
4Breiðablik23+433
5ÍA23-630
6Keflavík23-828
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.