18.09.26 - 08:30
Brynjar Ingi Erluson
Neville lætur teymi ungstirnisins heyra það - „Ákváðu að ýta á kjarnorkuhnappinn“

JJ Gabriel

Mynd: Man Utd

Gary Neville segir teymi leikmannsins ekki að vera hugsa um hag hans

Mynd: EPA

Roy Keane skilur ekkert í óþolinmæði Gabriel

Mynd: EPA

JJ Gabriel er aðal umræðuefnið í enska boltanum í dag

Mynd: Instagram/jjnr10

JJ Gabriel

Mynd: Man Utd
Sparkspekingurinn og fyrrum leikmaður Manchester United, Gary Neville, gagnrýnir teymið í kringum enska vængmanninn JJ Gabriel harðlega og lætur það heyra það í þættinum Stick to Football.

TENGT EFNI
Stórliðin vilja ósátt ungstirni Man Utd - Gæti farið í næsta mánuði
Á dögunum komu þær óvæntu fréttir fram að JJ Gabriel hygðist yfirgefa Manchester United og hefði beðið félagið um að afskrá sig úr hópnum.
Hann æfir ekki með félaginu og samkvæmt því sem hefur verið skrifað gæti hann yfirgefið United þegar hann verður 16 ára eftir nokkrar vikur. Real Madrid er sagt líklegasti áfangastaður hans.
Madrídingar þyrftu þá að greiða United uppeldisbætur og færi Gabriel væntanlega fyrst í varalið félagsins áður en hann fengi mögulega tækifæri með aðalliðinu síðar á tímabilinu.
Gary Neville furðar sig mikið á því hvernig málið kom upp á yfirborðið og telur útilokað að lekinn hafi komið frá United. Þá segir hann afar ólíklegt að 15 ára strákur hafi tekið þessa ákvörðun einn og sjálfur.
„Það kom stór tilkynning frá þekktum blaðamanni þar sem upplýsingum hafði greinilega verið lekið. Það er ekki í hag félagsins að leka þessu, sérstaklega ekki eftir úrslit helgarinnar. Þannig að það er augljóst að þetta kom frá teymi leikmannsins.“
„Teymið hefur ákveðið að ýta á kjarnorkuhnappinn og segja: ‚Bæng, við ætlum að taka JJ Gabriel frá Man Utd.‘ Það sem veldur mér mestum áhyggjum er að sá sem talar fyrir hans hönd virðist halda að þetta sé gott fyrir strákinn og að hann sé á forsíðum allra dagblaða,“ sagði Neville og Roy Keane tók undir.
Carrick er undir pressu
Keane segir tímasetninguna furðulega, sérstaklega þar sem nokkuð ljóst hafi verið að Gabriel fengi tækifæri á næstu mánuðum.
„Ætlarðu að segja mér að hann geti ekki beðið eftir tækifærinu? Ef þú ert 15 ára gamall og ert að tala um að spila fyrir aðallið Man Utd þá bíðurðu. Geturðu ekki gert það í sex vikur í viðbót ef United kemst áfram í bikarnum?“
„Carrick er undir pressu. Ferguson hefði alltaf hent ungu leikmönnunum inn í aðalliðið, en akkúrat núna þarf United að vinna leiki. Ég held að félagið sé ekki í þeirri stöðu að það geti bara sagt: ‚Við getum afskrifað þennan bikarleik og spilað bara ungu leikmönnunum.‘ Við þurfum að ná skriði og ef einhver 15 ára fer í fýlu yfir þessu þá tökum við bara á því.“
„Við töluðum um þetta með Mainoo, að hann þyrfti að bíða eftir tækifærinu, og hann var eldri. Ég bara næ því ekki að við séum að tala um 15 ára strák. Bíddu eftir tækifærinu og lærðu inn á þetta,“ sagði Keane.
Arsenal meðhöndlað Dowman frábærlega
Neville benti þá á hvernig Arsenal hefur farið með Max Dowman, sem kom sterkur inn í liðið á síðustu leiktíð og lék sinn fyrsta aðalliðsleik aðeins 15 ára gamall.
„Ég sé bara ekki skynsemina í því að einhver sem er fulltrúi 15 ára drengs telji það góða hugmynd að henda nafni hans fram í sviðsljósið á þessum tímapunkti. Þú vilt væntanlega reyna að slökkva eldana, ekki hella olíu á þá.“
„Ég veit ekki hvort þú manst eftir því þegar Max Dowman kom inn á á síðasta tímabili og Sky bað hann um viðtal eftir leikinn, en Arsenal harðneitaði. Þeir sendu hann beint inn í klefa og svo fór hann aftur í skólann á mánudeginum,“ sagði Neville.
Breyttir tímar, meiri óþolinmæði og félög hrædd um að missa sína hæfileikaríkustu leikmenn
Jamie Carragher benti á að tímarnir væru breyttir og félög væru orðin mun hræddari við að missa frá sér efnilega leikmenn. Fyrir vikið væru þau tilbúin að lofa þeim nánast gulli og grænum skógum til að halda þeim hjá sér.
Þá nefndi hann annan góðan punkt.
„Þegar staðan er svona ná leikmennirnir nánast aldrei að standa undir væntingunum. Stundum er það teymið í kringum þá, stundum foreldrarnir. Við munum allir eftir foreldrum efnilegra leikmanna þegar við vorum yngri og maður hefur oft litið til baka og hugsað að fólkið í kringum suma þeirra hafi einfaldlega ekki hjálpað þeim.“
„Í 70-80 prósent tilvika þar sem foreldrarnir eru algjör martröð ná leikmennirnir ekki að standa undir væntingunum,“ sagði Carragher.
Neville nefndi einnig hversu stórt mál það hafi verið þegar Manchester United fékk Ryan Giggs úr akademíu Manchester City á sínum tíma og þegar Jadon Sancho yfirgaf City fyrir Borussia Dortmund.
Hann segir hungrið eftir því að spila strax í aðalliði vera orðið meira hjá ungum leikmönnum og telur jafnframt að þeir sem fara með mál margra þeirra séu ekki alltaf að hugsa fyrst og fremst um hvað sé þeim sjálfum fyrir bestu.