Fotbolti.net
18.09.26 - 16:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Orri Hrafn: Ákveðið stolt fyrir mig að spila fyrir KR

Orri Hrafn er 24 ára miðjumaður sem hefur átt gott tímabil með KR.

Orri Hrafn er 24 ára miðjumaður sem hefur átt gott tímabil með KR.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

„Leikurinn leggst mjög vel í mig, eins og svo sem flestir leikir. En leikirnir við Víking á þessu tímabili hafa verið sérstaklega skemmtilegir og smá auka spenningur sem fylgir þeim," segir Orri Hrafn Kjartansson, leikmaður KR, fyrir leik liðsins gegn Víkingi sem fram fer á morgun.

Liðin mætast á Meistaravöllum, heimavelli KR, og hefst leikurinn 14:00.
Óskar Hrafn: Treysti á að þeir sæki þá aukakraft í þá mynd
TENGT EFNI

Óskar Hrafn: Treysti á að þeir sæki þá aukakraft í þá mynd

Þurfa að nýta stöðurnar betur
Hvað þurfið þið að gera til að vinna?

„Ég tel að ef við mætum í leikinn gegn þeim með orku og krafti eins og við höfum gert í fyrri leikjunum og nýtum betur stöðurnar sem við fáum á síðasta þriðjungi, þá sé ég ekki annað fyrir en að við náum í góð úrslit."

Veitir aukinn drifkraft
Hvernig er að fara í leik þar sem andstæðingurinn getur orðið meistari ef þitt lið tapar?

„Það er klárlega aukinn drifkraftur fyrir okkur sem lið að koma í veg fyrir það, hvað þá á okkar heimavelli. En við mætum til leiks til að vinna þennan leik á okkar eigin forsendum. Við viljum vinna alla leiki og það er ekkert öðruvísi núna."

Mjög sáttur við hlutverkið
Orri hefur byrjað 16 leiki í Bestu deildinni, skorað tvö mörk og lagt upp sex. Hvernig horfir tímabilið til þessa við þér?

„Ég er mjög ánægður með tímabilið hjá liðinu, hópnum í heild og sömuleiðis með mitt framlag til liðsins. Ég er mjög sáttur við mitt hlutverk og tel mig hafa náð að nýta mína styrkleika til að efla liðið."

„Ég hef spilað mikið og virkilega notið þess að vera hluti af liðinu í sumar. Við höfum skorað mikið af mörkum og ég hef átt fínan þátt í því - það er klárlega hluti af mínum leik sem ég vil halda áfram að þróa og bæta."


Stoltur að spila fyrir KR
Orri Hrafn var keyptur til KR frá Val í sumarglugganum fyrir rúmu ári síðan. Ákvörðunin og tækifærið að fara í KR í fyrra, hvernig horfir þú til baka á það í dag?

„Ég held að það sé klárlega að sýna sig að þessi ákvörðun hafi verið virkilega góð fyrir mig. Ekki bara út frá því að ég hef fengið að spila mikið og bætt minn leik, heldur líka einfaldlega af því að mér líður mjög vel í Vesturbænum."

Hjá Val náði Orri Hrafn aldrei að vinna sig inn í lykilhlutverk í liðinu. Hvernig hefur verið að komast aftur í stórt og mikilvægt hlutverk í liði?

„Sem fótboltamaður fer maður í gegnum mismunandi hlutverk og þau eru öll krefjandi á sinn hátt. Ég nýt þess mjög mikið að vera í því hlutverki sem ég er í í dag, fá mikið traust og geta lagt mitt af mörkum til liðsins. Það er líka ákveðið stolt sem fylgir því fyrir mig að spila fyrir KR."

Er eitthvað sérstakt á bakvið það að þú sért stoltur af því að spila fyrir KR?

„Afi minn sem lést í fyrra var mikill KR-ingur, einnig föðurbróðir, móðurbróðir og tengdapabbi," segir Orri Hrafn og það er því ljóst að það eru, og hafa verið, KR-ingar í kringum hann í lífinu.

Aðalatriðið að standa sig og líða vel
Orri Hrafn fór ungur út til Heerenveen frá uppeldisfélaginu Fylki. Ertu að horfa eitthvað í möguleikann að komast jafnvel erlendis aftur á þínum ferli?

„Maður er alltaf að reyna að bæta sig, ég hef metnað og vill ná eins langt og ég get. Ef það myndi bjóðast eitthvað spennandi tækifæri erlendis þá myndi maður klárlega skoða það. En það er margt sem spilar inn í og eitt af því er að mér líður mjög vel þar sem ég er í dag. Þannig fyrir mig er aðalatriðið að halda áfram að standa mig og líða vel og sjá svo hvað gerist."

Liðið og þjálfarar vita hvað hann gefur liðinu
Hvernig myndir þú skilgreina þitt hlutverki inni á vellinum hjá KR?

„Ég myndi segja að mitt hlutverk sé fyrst og fremst að færa liðinu orku og kraft, bæði með og án boltans. Ég vil geta brotið upp leiki, sett kraft í sóknarleikinn og haft áhrif þegar ég fæ boltann. Mér finnst mikilvægt að liðsfélagar mínir og þjálfarateymið viti hvað þeir fá frá mér í hverjum leik og á hverri æfingu, og ég held að þeir geri það."

Hlakkar til að sjá bestu stuðningsmenn landsins
Ertu með einhver skilaboð til stuðningsmanna KR fyrir morgundaginn?

„Skilaboðin eru einföld, ég hlakka til að sjá bestu stuðningsmenn landsins mæta á leikinn á morgun og styðja við bakið á okkur eins og þið hafið gert í allt sumar. Við munum gefa allt í þennan leik eins og vanalega og við þurfum á ykkar stuðningi að halda!" segir Orri Hrafn.
Ég er mjög sáttur við mitt hlutverk og tel mig hafa náð að nýta mína styrkleika til að efla liðið

Ég er mjög sáttur við mitt hlutverk og tel mig hafa náð að nýta mína styrkleika til að efla liðið

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Þannig fyrir mig er aðalatriðið að halda áfram að standa mig og líða vel og sjá svo hvað gerist

Þannig fyrir mig er aðalatriðið að halda áfram að standa mig og líða vel og sjá svo hvað gerist

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Sem fótboltamaður fer maður í gegnum mismunandi hlutverk og þau eru öll krefjandi á sinn hátt.

Sem fótboltamaður fer maður í gegnum mismunandi hlutverk og þau eru öll krefjandi á sinn hátt.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Orri Hrafn: Ákveðið stolt fyrir mig að spila fyrir KR
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Ég vil geta brotið upp leiki, sett kraft í sóknarleikinn og haft áhrif þegar ég fæ boltann.

Ég vil geta brotið upp leiki, sett kraft í sóknarleikinn og haft áhrif þegar ég fæ boltann.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mér finnst mikilvægt að liðsfélagar mínir og þjálfarateymið viti hvað þeir fá frá mér í hverjum leik og á hverri æfingu, og ég held að þeir geri það

Mér finnst mikilvægt að liðsfélagar mínir og þjálfarateymið viti hvað þeir fá frá mér í hverjum leik og á hverri æfingu, og ég held að þeir geri það

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Víkingur R.23+4956
2KR23+2947
3Fram23+1245
4Breiðablik23+433
5ÍA23-630
6Keflavík23-828
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.