Óskar Hrafn: Treysti á að þeir sæki þá aukakraft í þá mynd

Held að allir KR-ingar séu meðvitaðir um þessa staðreynd

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Væri til í enn meiri sturlun úr stúkunni á morgun.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Stefán og KR eru í viðræðum um nýjan samning.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Við viljum nálgast Víking, eigum að geta það, en til þess að það gerist þurfum við að ná meiri stöðugleika í leik okkar og þurfum að sýna að við getum unnið þá.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Ég er búinn að vera óska þeim til hamingju með meistaratitilinn í margar vikur og það er engin hugarleikfimi eða ég að spila einhverja leiki

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Svo er undir okkur hinum komið að nálgast það og fara yfir þá. Þeir eru bara frábært lið.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Stuðningsmenn KR eru yfirleitt ansi öflugir.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Held að allir KR-ingar séu meðvitaðir um þessa staðreynd

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
F?tbolti.net ræddi við Óskar Hrafn Þorvaldsson, þjálfara KR, um komandi leik sem hefst klukkan 14:00 á morgun og fer fram á Meistaravöllum.

Sölvi varar við dagdraumum - „Eftir síðustu umferð eru allir meðvitaðir"
Þessi staðreynd, að Víkingur geti orðið Íslandsmeistari, er það eitthvað sem þið eruð að horfa í að láta ekki gerast?
„Ef að svo ólíklega vill til að einhver leikmaður í KR liðinu finnur ekki hjá sér þörfina til að leggja sig 100% fram - við það að spila við Víkingi á laugardegi - þá treysti ég að hann geti notað sér myndina af leikmönnum Víkings að fagna Íslandsmeistaratitil á okkar heimavelli, geti sótt einhvern aukakraft í þá mynd í huga sér."
„Þetta er ekki eitthvað sem skipar stóran sess í undirbúningi okkar, en ég held að allir KR-ingar séu meðvitaðir um þessa staðreynd og hafi engan sérstakan áhuga á því að upplifa það," segir Óskar Hrafn.
Stefán veit að KR vill halda honum
Hann segir að allir í hópnum séu leikfærir nema Stefán Árni Geirsson. „Það eru allir heilir fyrir utan Stefán Árna. Ég held að hann verði klár eftir landsleikjahlé, hann meiddist á nára en lítur bara vel út."
Stefán Árni er eini leikmaðurinn í hópnum sem er með lausan samning. Eru einhverjar viðræður í gangi um framlengingu?
„Það eru viðræður í gangi við hann, hann er á ákveðnum tímamótum og er að skoða sín mál. Ég held að bæði félagið og hann séu róleg yfir stöðu mál. Það er ekkert launungarmál að ef Stefán ætlar að spila á Íslandi þá viljum við hafa hann í KR, það er klárt og hann veit af því."
Besta og dýrasta lið landsins
KR hefur ásamt Fram verið að elta Víking á tímabilinu. Hvaða þýðingu upp á framhaldið hefði það að vinna þennan leik?
„Það er alltaf markmiðið í hverjum leik að vinna. Víkingur hefur sett rána hátt, Víkingur er liðið sem öll hin liðin eru að elta og leitast við að nálgast. Hver leikur við þá er mikilvægur fyrir okkur í þeirri viðleitni að nálgast þá. Sigur á morgun myndi gefa mönnum gott sjálfstraust, en það mikilvægast er að klára þetta mót af krafti og nota það til að koma ennþá sterkari á næsta ári. Við viljum nálgast Víking, eigum að geta það, en til þess að það gerist þurfum við að ná meiri stöðugleika í leik okkar og þurfum að sýna að við getum unnið þá. Leikurinn er á morgun er geggjað tækifæri til að máta sig við besta lið landsins; best mannaða og dýrasta lið landsins. Ég held að menn mæti og njóti þess að mæla sig við þá bestu."
Munu reyna að henda leiknum upp í óreiðu
Liðin mættust í upphafi mánaðar á sama velli og endaði sá leikur með 1-1 jafntefli. Áttu von á alveg eins leik og síðast?
„Ég á von á svipuðum leik. Þeir munu reyna að stjórna leiknum á sinn hátt og við munum reyna að taka þá eins langt út fyrir þægindarammann og við eigum möguleika á. Við munum nota hvert einasta tækifæri og við getum til að henda leiknum upp í óreiðu sem þeir líður ekki vel í."
Víkingur í algjörum sérflokki í því
Er augljósi munurinn á KR og Víkingi stöðugleikinn yfir tímabilið?
„Það er einn af styrkleikum Víkings. Það er líka þrautseigja, reynsla og þeir kunna að gera hluti sem færa þeim fleiri sigra heldur en jafntefli og töp. Þeir eru með frábært fótboltalið, rútínerað og frábæra leikmenn. Þeir vinna leiki sem þeir eru kannski ekki upp á sitt besta."
„Við erum ekki endilega þar. Hver einasti leikur sem við höfum unnið í sumar líður mér eins og hafi verið sanngjarn sigur. Í þeim leikjum sem við höfum við tapað höfum við átt skilið að tapa, en það eru einhver jafntefli þar sem menn naga sig í handarbökin yfir því að hafa ekki unnið. Í grunninn höfum við fengið það sem þú átt skilið og þú þarft kannski aðeins meira en það ef þú ætlar að berjast á toppnum. Þú þarft að taka þrjú stig þar sem þú ert ekki upp á þitt besta og í því eru Víkingarnir í algjörum sérflokki."
„Ég er búinn að vera óska þeim til hamingju með meistaratitilinn í margar vikur og það er engin hugarleikfimi eða ég að spila einhverja leiki. Staðreyndin er bara sú að þeir eru besta lið landsins, þeir stilla hæðina á ránni. Svo er undir okkur hinum komið að nálgast og fara yfir þá. Þeir eru bara frábært lið."
Væri til í meiri stemningu í stúkunni
Það komu yfir fjögur þúsund manns á síðasta leik liðsins, hvernig var að upplifa það og vonastu eftir einhverju svipuðu á morgun?
„Ég á ekki von á sama fjölda, yrði hissa ef það gerist, en ég á von á mjög góðri mætingu. Hafandi sagt það þá hef ég fundið betri stemningu á Meistaravöllum en á síðasta leik, líka þegar við fórum á Hlíðarenda í byrjun maí. Þó að fjöldinn hafi verið gríðarlegur, umgjörðin frábær og meiriháttar gaman að sjá þennan fjölda, þá upplifði ég persónulega ekki stemninguna sem sturlaða. Ég væri til í meiri sturlun úr stúkunni á morgun," segir Óskar að lokum.

Væri til í enn meiri sturlun úr stúkunni á morgun.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Stefán og KR eru í viðræðum um nýjan samning.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Við viljum nálgast Víking, eigum að geta það, en til þess að það gerist þurfum við að ná meiri stöðugleika í leik okkar og þurfum að sýna að við getum unnið þá.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Ég er búinn að vera óska þeim til hamingju með meistaratitilinn í margar vikur og það er engin hugarleikfimi eða ég að spila einhverja leiki

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Svo er undir okkur hinum komið að nálgast það og fara yfir þá. Þeir eru bara frábært lið.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Stuðningsmenn KR eru yfirleitt ansi öflugir.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Stöðutafla
| # | Lið | L | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|
| 1 | Víkingur R. | 23 | +49 | 56 |
| 2 | KR | 23 | +29 | 47 |
| 3 | Fram | 23 | +12 | 45 |
| 4 | Breiðablik | 23 | +4 | 33 |
| 5 | ÍA | 23 | -6 | 30 |
| 6 | Keflavík | 23 | -8 | 28 |
