Fotbolti.net
18.09.26 - 11:22
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Sölvi varar við dagdraumum - „Eftir síðustu umferð eru allir meðvitaðir"

Víkingur getur tryggt sér Íslandsmeistaratitilinn á morgun

Það er hættulegt að fara dagdreyma um hvernig það verði að lyfta bikarnum og hvernig partíið verður

Það er hættulegt að fara dagdreyma um hvernig það verði að lyfta bikarnum og hvernig partíið verður

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Víkingur heimsækir KR á Meistaravelli klukkan 14:00 á morgun. Með sigri verður Víkingur Íslandsmeistari annað árið í röð þó að þrjár umferðir verði eftir af mótinu.

„Leikurinn leggst frábærlega í mig. Við erum komnir í þessa stöðu að geta tryggt okkur Íslandsmeistaratitilinn gegn þeim. Ég er mjög stoltur af liðinu, menn hafa verið agaðir og hafa haldið ákveðnum standard í gegnum allt tímabilið; mér hefur aldrei fundist eins og hungrið hafi dottið niður. Við töluðum um það fyrir tímabilið og í byrjun móts að við þyrftum að finna fyrir hungrinu sem á oft til með að minnka eftir að hafa unnið í fyrra. Það er mjög vel gert hvernig menn nálguðust það," segir Sölvi Geir Ottesen sem er þjálfari Víkings.
Bjartsýnn á að Gylfi spili - „Stórkostlegt að fylgjast með þessu"
TENGT EFNI

Bjartsýnn á að Gylfi spili - „Stórkostlegt að fylgjast með þessu"

Geta ekki leyft sér að dagdreyma á meðan leik stendur
„Við erum búnir að koma okkur í þessa góðu stöðu, en það er ekkert búið. Við verðum að klára dæmið, megum ekki fara að hugsa of mikið fram í tímann. Við þurfum að vera í leiknum, einbeittir á hann. Það er hættulegt að fara dagdreyma um hvernig það verði að lyfta bikarnum og hvernig partíið verður. Það er hætta á því að það gerist, en við þurfum að halda einbeitingu, hugsa um næsta einvígi. Það getur verið krefjandi þegar það er svona mikið undir. Mér finnst við hafa sýnt það vel í síðustu leikjum og síðustu ár að þegar mikið er undir þá spilum við oft okkar besta leik."

Fagnar fótboltanum sem KR spilar
KR er í 2. sæti fyrir leikinn, níu stigum á eftir Víkingi. Tilfinningin er sú að KR líti á sig sem aðalkeppinauta Víkings, bæði núna og til framtíðar. Finnst þér mikilvægt upp á framhaldið og ríginn að sýna að þið séuð betri en þeir í innbyrðis leikjum liðanna?

„Við setjum enga einbeitingu á það. Eins leiðinlegt svar og það er þá viljum við fara í alla leiki til að vinna þá. Við hugsum ekki um eitthvað ákveðið félag upp á að þurfa að passa sig á þeim og vinna leikinn gegn þeim. Við nálgumst alla okkar leiki eins."

„Ég fagna því frekar að KR spilar öðruvísi fótbolta en nokkurt lið hefur gert. KR tekur mikla áhættu og það er ákveðin óreiða í þeirra leik sem er mjög skemmtilegt fyrir fótboltaunnendur að horfa á. Þeir eru að skora á okkar varnarleik með sínum leikstíl. Ég fagna því að það sé meiri fjölbreytileiki í deildinni. Við eflumst við það, þurfum að tækla mismunandi mótherja og við nýtum okkur það í að bæta okkur. Ég fagna því að KR sé að spila þennan skemmtilega sóknarleik. og við þurfum að finna lausnir í okkar varnarleik til að stoppa þá. Hingað til höfum við gert það vel og ég vona að við höldum því áfram."


Ef hann er á miðjunni þá auðvitað kíkjum við hvort möguleiki sé á skoti
Talandi um áhættu, Arnar Freyr Ólafsson í marki KR fór ansi langt út úr marki sínu í síðasta leik. Það þarf væntanlega ekki að segja þínum mönnum að kíkja upp og sjá hvort markið hjá KR sé jafnvel opið þegar boltinn er unninn?

„Eftir síðustu umferð eru allir meðvitaðir um þetta. Eins og í öllum leikjum snýst þetta um að taka réttar ákvarðanir þegar augnablikin gefast. Við þurfum að passa okkur að þvinga ekki neitt, en ef markmaðurinn er kominn á miðjuna þá auðvitað kíkjum við hvort það sé möguleiki á því að skjóta. Það er samt engin einbeiting á það, gerist bara í leiknum hvort þeir finna fyrir því að þeir eigi að skjóta. Þetta eru ákvarðanatökur sem menn verða að taka innan leiksins," segir Sölvi Geir.
 Ég er mjög stoltur af liðinu, menn hafa verið agaðir og hafa haldið ákveðnum standard í gegnum allt tímabilið

Ég er mjög stoltur af liðinu, menn hafa verið agaðir og hafa haldið ákveðnum standard í gegnum allt tímabilið

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

KR tekur mikla áhættu og það er ákveðin óreiða í þeirra leik sem er mjög skemmtilegt fyrir fótboltaunnendur að horfa á

KR tekur mikla áhættu og það er ákveðin óreiða í þeirra leik sem er mjög skemmtilegt fyrir fótboltaunnendur að horfa á

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Ef markmaðurinn er kominn á miðjuna þá auðvitað kíkjum við hvort það sé möguleiki á því að skjóta.

Ef markmaðurinn er kominn á miðjuna þá auðvitað kíkjum við hvort það sé möguleiki á því að skjóta.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Víkingur R.23+4956
2KR23+2947
3Fram23+1245
4Breiðablik23+433
5ÍA23-630
6Keflavík23-828
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.