Segir pressuna meiri á KA - Sálfræðilegt forskot að hafa unnið fyrri rimmu vikunnar

g held að það verði verra fyrir þá að tapa þessum leik heldur en okkur, þó að það sé alltaf hræðilegt

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Ég hef engar áhyggjur af því að menn verði ekki með gott hugarfar þegar flautað verður á

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Úr fyrri leik liðanna á Greifavelli.

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Það eru allir heilir sem sýnir gott hugarfar í hópnum; þegar komið er í stærsta leikinn og mest er undir þá eru allir klárir og langar inn á völlinn.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Við erum að leggja allt í sölurnar og vonandi koma stuðningsmenn með alvöru stemningu inn í þennan leik og við fögnum saman í leikslok

Mynd: Toggipop

Ég verð sáttur ef við breytum þessum stöðum í alvöru færi í leiknum á morgun

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

'Það að fá útileik innanbæjar er fínt fyrir okkur, held að stemningin verði frábær báðu megin'

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

g held að það verði verra fyrir þá að tapa þessum leik heldur en okkur, þó að það sé alltaf hræðilegt

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Þór er stigi fyrir ofan KA fyrir leikinn þegar tólf stig eru í pottinum. Fótbolti.net ræddi um leikin við Sigurð Heiðar Höskuldsson, Sigga, sem er þjálfari Þórs.

„Æðislegt að við höfum fengið þennan leik á okkar heimavelli"
„Þetta leggst mjög vel í mig, þessir leikir á milli Þór og KA eru öðruvísi en aðrir leikir. Þessi er aðeins öðruvísi en fyrri tveir, það er aðeins meira undir núna en í stökum leikjum fyrr á tímabilinu, núna erum við komnir í „crunch time" og það gefur þetta extra krydd," segir Siggi.
Skiptir máli að þessi leikur sé á heimavelli KA en ekki hinu megin við ána?
„Nei, ég er ekki á því. Það að fá útileik innanbæjar er fínt fyrir okkur, held að stemningin verði frábær báðu megin." Í neðra umspilinu spila bæði Þór og KA tvo heimaleiki og þrjá útileiki.
Meiri pressa á KA
Þór er stigi fyrir ofan KA. Er meiri pressa á KA fyrir leikinn?
„Já, ég horfi á það þannig og ég held að þeir geri það líka. Ég held að það verði verra fyrir þá að tapa þessum leik heldur en okkur, þó að það sé alltaf hræðilegt."
Vill ná að breyta góðum stöðum í færi og mörk
Er eitthvað sem þú tekur úr fyrri tveimur leikjunum gegn KA?
„Mér fannst ákefðin og hugarfarið í þeim leikjum heilt yfir mjög gott. Mér fannst við heilt yfir betri í fyrri leiknum, fannst við óheppnir og áttum ekki að tapa þeim leik. Við vorum ekkert sérstakir í fyrri hálfleiknum í seinni leiknum, en hugarfarið var til staðar og fannst við betri aðilinn í seinni hálfleiknum. Eftir allt sem gekk á í þeim leik var ég svekktur með að hafa ekki unnið - fengum stöður og sénsa í seinni hálfleik til að gera meira. Þeir voru töluvert meira ógnandi í fyrri hálfleik en mér fannst við betri í seinni hálfleik."
„Ég vil sjá sama hugarfar og sömu ákefð og í fyrri leikjum gegn þeim og ég held að það verði alltaf til staðar hjá báðum liðum - sama hvað. Við þurfum aðeins meiri ró og yfirvegun í okkar leik. Það er og verður alltaf erfitt í þessum leikjum, sama hvenær þeir eru spilaðir. Við þurfum að nýta stöðurnar okkar á síðasta þriðjungi betur, ná fleiri skotum á markið, fylla teiginn vel og ógna markinu þeirra meira. Það er markmiðið í öllum leikjum og sérstaklega þessum. Við fengum 2-3 mjög góð færi í fyrsta leiknum en komumst frekar í góðar stöður (heldur en færi) í síðasta leik gegn KA. Ég verð sáttur ef við breytum þessum stöðum í alvöru færi í leiknum á morgun. Með því koma fleiri mörk og við eigum eftir að skora gegn KA í sumar sem er alltaf lykill að sigri."
Siggi segir að allir leikmenn Þórs séu klárir í slaginn. „Það eru allir heilir sem sýnir gott hugarfar í hópnum; þegar komið er í stærsta leikinn og mest er undir þá eru allir klárir og langar inn á völlinn. Mér finnst það góður stimpill á liðið að sú sé raunin og er ánægður með það."
Sálfræðilegt forskot að Þór vann fyrri rimmu vikunnar
Heldur að það gefi Þór sem félagi og ykkur sem liði eitthvað að handboltaliðið vann KA í vikunni?
„Já, ég held það geri það. Það er auka krydd og held það gefi okkur smá sálfræðilegt forskot, bæði handboltaleikurinn og fótboltaleikurinn eru á útivelli. Ég held að KA séu ennþá sannfærðari um að þeir verði að vinna leikinn á morgun til að tapa ekki báðum leikjum vikunnar, sérstaklega þar sem báðir eru á heimavelli."
Leggja allt í sölurnar svo Þór vinni leikinn og haldi sér uppi
Leikurinn er 19:30, nokkuð seint um kvöldið. Þarftu að segja mönnum að halda haus fram að leik?
„Ég held það sé persónubundið milli manna. Við tölum alltaf um undirbúning, bæði líkamlega og andlega fyrir leiki. Kvöldleikir eru mjög skemmtilegir, spilað undir ljósunum. Ég trúi ekki öðru en að menn trúi á sína rútínu, viti hvað lætur þá tikka og hvernig þeir ná sínu besta fram þegar flautað er til leiks. Ég hef engar áhyggjur af því að menn verði ekki með gott hugarfar þegar flautað verður á."
„Ég hlakka til að hitta stuðningsmenn í Hamri fyrir leik. Ég held að Þórsarar viti að við erum að gera allt sem í okkar valdi stendur til að gleðja þá, vinna KA og að lokum halda liðinu uppi. Við erum að leggja allt í sölurnar og vonandi koma stuðningsmenn með alvöru stemningu inn í þennan leik og við fögnum saman í leikslok," segir Siggi.

Ég hef engar áhyggjur af því að menn verði ekki með gott hugarfar þegar flautað verður á

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Úr fyrri leik liðanna á Greifavelli.

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Það eru allir heilir sem sýnir gott hugarfar í hópnum; þegar komið er í stærsta leikinn og mest er undir þá eru allir klárir og langar inn á völlinn.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Við erum að leggja allt í sölurnar og vonandi koma stuðningsmenn með alvöru stemningu inn í þennan leik og við fögnum saman í leikslok

Mynd: Toggipop

Ég verð sáttur ef við breytum þessum stöðum í alvöru færi í leiknum á morgun

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

'Það að fá útileik innanbæjar er fínt fyrir okkur, held að stemningin verði frábær báðu megin'

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Gríðarlega mikið undir í bæjarslagnum - „Saman munum við halda okkur í efstu deild"

„Kjörið tækifæri til að halda bænum áfram rauðum saman"
Stöðutafla
| # | Lið | L | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|
| 1 | Stjarnan | 23 | -6 | 31 |
| 2 | Valur | 23 | -3 | 30 |
| 3 | FH | 23 | -9 | 24 |
| 4 | Þór | 23 | -31 | 21 |
| 5 | KA | 23 | -16 | 20 |
| 6 | ÍBV | 23 | -15 | 18 |
