Tók hanskana af Stephanie og setti hana í senterinn: „Kannski er hún lausnin“

Gylfi Tryggvason hefur þurft að leita óhefðbundinna lausna í sóknarleik Grindavíkur/Njarðvíkur á tímabilinu.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Stephanie Bukovec hefur staðið á milli stanganna hjá Grindavík/Njarðvík í sumar en kom inn á sem framherji gegn Breiðabliki

Mynd: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson

Gylfi Tryggvason hefur þurft að leita óhefðbundinna lausna í sóknarleik Grindavíkur/Njarðvíkur á tímabilinu.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Grindavík/Njarðvík hefur þurft að leita ýmissa leiða að mörkum á tímabilinu og í 4-1 tapinu gegn Breiðabliki í gær kom markvörðurinn Stephanie Bukovec inn á sem framherji undir lok leiks.
Stephanie hefur varið mark Grindavíkur/Njarðvíkur í sumar en á síðustu leiktíð í Kanada lék hún sem framherji. Gylfi Tryggvason, þjálfari liðsins, var ánægður með innkomu hennar sem framherja á Eikarvellinum.

„Örugglega heimsmet“ – Fimm markmenn og 17 leikmenn farnir síðan í júlí
„Mér fannst hún bara fín. Hún átti eina mjög góða sendingu inn fyrir og bara reyndi að valda usla. Maður sá hversu mikið hún vill þetta. Hún hefur náttúrulega verið frábær markmaður og átt frábæran feril sem markmaður.“
Gylfi segir að það hafi raunar legið fyrir þegar Stephanie kom til félagsins að hún myndi færa sig framar á völlinn þegar bikarævintýri liðsins væri lokið.
„Hún kom til okkar og var til í að vera markmaður fram að bikarúrslitunum og sóknarmaður eftir það. Nú eru bikarúrslitin búin þannig að nú er hún sóknarmaður.“
Grindavík/Njarðvík hefur átt í vandræðum með að finna stöðugan markaskorara í sumar.
„Við erum búin að vera, held ég, með sjö markmenn á tímabilinu og ég veit ekki hversu mörgum leikmönnum við höfum spilað sem sóknarmönnum.“
„Ég held að markahæsti leikmaðurinn okkar á tímabilinu sé með fjögur mörk og þau mörk komu á 20 mínútna kafla í einum fótboltaleik. Hún er búin að spila þá 17 leiki og 70 mínútur án þess að skora og hún er líka miðvörður.“
Meiðsli hafa sett strik í reikninginn í sóknarleik liðsins og þar nefnir Gylfi sérstaklega Tinnu Hrönn Einarsdóttur, sem var markahæsti leikmaður Grindavíkur/Njarðvíkur í Lengjudeildinni á síðasta tímabili.
„Tinna Hrönn náttúrulega var markahæsti leikmaðurinn okkar í fyrra í Lengjudeildinni. Maður batt miklar vonir við það að hún gæti gert sig gildandi í efstu deild núna á þessu tímabili.“
„Hún var byrjuð að gera það, var byrjuð að taka mikið til sín þegar hún meiddist og datt út alveg í einhverja tvo mánuði. Hún er að koma til baka núna, búin að vera með frábæra innkomu í bikarúrslitaleikinn og bjó til margar góðar stöður þar. Núna líka fannst mér hún koma virkilega vel inn í þetta.“
Gylfi leyfir sér að velta því fyrir sér hvernig staðan væri ef Tinna Hrönn hefði verið heil allt tímabilið.
„Ég leyfi mér að fara í smá ef-hugsanir. Hvað ef hún hefði verið heil allt tímabilið hjá okkur? Þá held ég að við værum með tíu marka leikmanninn sem við vildum hafa en höfum ekki haft.“
Í leitinni að fleiri mörkum var því komið að Stephanie.
„Við reyndum enn einn leikmanninn. Við tókum núna markmann og tókum hanskana af henni og settum hana í senterinn. Sjáum bara hvort hún geti skorað einhver mörk fyrir okkur.“
„Ég vil að sóknarmaður skori mörk. Sóknarmaður í liðinu sem ég er að þjálfa verður að skora mörk. Þetta er ekki eitthvað svona Bobby Firmino, það verður að skora.“
Hann telur að staða Grindavíkur/Njarðvíkur gæti verið önnur ef liðið hefði haft leikmann sem hefði náð tveggja stafa markatölu.
„Ég leyfi mér að hugsa hvar við værum ef við værum með tíu marka mann í liðinu okkar, sem að hefði að mínu mati verið Tinna Hrönn ef hún hefði verið heil eða Lili Farkas ef hún hefði verið heil.“
Kannski hefur Gylfi þó fundið óvænta lausn fyrir lokakafla tímabilsins.
„Kannski er hún bara Stephanie lausnin sem við erum búin að vera að leita að allan tímann. Ég veit það ekki.“

Stephanie Bukovec hefur staðið á milli stanganna hjá Grindavík/Njarðvík í sumar en kom inn á sem framherji gegn Breiðabliki

Mynd: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson
