18.10.13 - 10:30
Magnús Már Einarsson
Búi tekur við Leikni Fáskrúðsfirði (Staðfest)

Magnús Ásgrímsson formaður Leiknis og Búi Vilhjálmur.

Mynd: Leiknir Fáskrúðsfirði

Leiknir Fáskrúðsfirði í 3. deild hefur ráðið Búa Vilhjálm Guðjónsson sem þjálfara til næstu tveggja ára.
Búi er með UEFA A gráðu í þjálfun en hann mujn taka til starfa um mánaðarmót og flytja á Fáskrúðsfjörð um áramót.

Búi var áður yfirþjálfari yngri flokka hjá Hetti í tvö ár, þjálfari Samherja úr Eyjafjarðarsveit í 3. deild og aðstoðarþjálfari Magna á Grenivík. Auk þess þjálfaði hann yngri flokka hjá Þór.
,,Stjórn knattspyrnudeildar býður Búa velkominn til starfa og hlakkar til samstarfsins. Markið er sett á toppbaráttu þriðju deildar næsta sumar,\" segir í tilkynningu á heimasíðu Leiknis.