Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   þri 18. október 2022 07:40
Ívan Guðjón Baldursson
Fótboltamaður segir Mendy hafa nauðgað kærustu sinni
Mynd: Getty Images

Dómsmálið gegn Benjamin Mendy og félaga hans Louis Saha Matturie er í gangi þessa dagana og voru ný gögn birt í gær.


Þar kom meðal annars fram vitnisburður frá atvinnumanni í fótbolta sem segir að Mendy hafi nauðgað kærustu sinni.

Kærasta fótboltamannsins var í eftirpartý heima hjá Mendy þar sem hún kyssti Jack Grealish, leikmann Man City. Stelpan fór svo inn í herbergi með Mendy sem læsti þau inni og nauðgaði henni.

Atvikið átti sér stað í ágúst 2021, skömmu áður en Mendy var handtekinn. Konan sem um ræðir er því kona númer 10 sem Mendy er ásakaður um að brjóta gegn.

Fótboltamaðurinn hafði verið í sambandi með konunni í tvö og hálft ár þegar atvikið átti sér stað. Hún sagði honum frá nauðguninni þegar hún átti sér stað og fór hann með málið til lögreglu.

Þessi umrædda kona númer 10 mætti ekki sjálf í dómssalinn af hræðslu við að missa starfið sitt. Lögregluskýrsla frá ágúst 2021 var þess í stað lesin upp - í henni svarar fótboltamaðurinn spurningum lögreglumanna og lýsir atburðarásinni.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner