18.10.26 - 13:24
Brynjar Ingi Erluson
De Zerbi um Richarlison: Ekki mitt vandamál lengur

Richarlison

Mynd: EPA

De Zerbi segir dyrnar opnar ef Richarlison vill ræða málin

Mynd: EPA

Richarlison

Mynd: EPA
Roberto De Zerbi, stjóri Tottenham, segir Richarlison velkomið að ræða við sig um framtíð sína hjá félaginu, en tekur jafnframt skýrt fram að málið sé ekki lengur á hans ábyrgð.

TENGT EFNI
Vill sjá Richarlison snúa aftur úr kuldanum
Richarlison er ekki skráður í leikmannahóp Tottenham í ensku úrvalsdeildinni, en hann gaf til kynna undir lok félagaskiptagluggans að hann vildi yfirgefa félagið.
Hann átti í viðræðum við nokkur félög en ekkert varð úr því og hefur hann síðan þá æft og spilað með U21 árs liði Tottenham.
De Zerbi, stjóri Tottenham, var spurður út í framtíð Richarlison og hvort hann ætti möguleika á að komast aftur inn í aðalliðið. De Zerbi virtist lítið vilja ræða málið og benti á að ákvörðunin hefði ekki verið í hans höndum.
„Ég veit það ekki. Þetta er ekki mitt vandamál lengur. Þú verður að spyrja Vinai (framkvæmdastjóra Tottenham) eða Johan (yfirmann íþróttamála). Sem þjálfari þarf ég hins vegar að sætta mig við stöðuna, styðja við leikmenn sem eru undir pressu og taka ábyrgð, þótt þetta hafi ekki verið mín ákvörðun.“
„Ég tók enga ákvörðun í þessu máli og ef hann vill ræða við mig veit hann hvar mig er að finna. Ég er á skrifstofunni frá 8:30 á morgnana og fram á kvöld. Ég á ekki í neinum vandræðum með neinn, en ég vil ekki ræða þetta frekar. Öll mín einbeiting er á leiknum gegn Coventry og því að gera liðið betra,“ sagði De Zerbi.