Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   fim 18. nóvember 2021 06:00
Brynjar Ingi Erluson
Anton Breki semur við Ægi (Staðfest)
Anton Breki, sem er hér fyrir miðju, samdi við Ægi í gær
Anton Breki, sem er hér fyrir miðju, samdi við Ægi í gær
Mynd: Ægir
Anton Breki Viktorsson mun leika með Ægismönnum í 2. deild á næstu leiktíð en hann kemur til félagsins frá Selfossi. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Ægi.

Anton er fæddur árið 2000 og hefur síðustu þrjú tímabil verið á láni hjá Ægi frá Selfyssingum.

Á þessum þremur tímabilum hefur hann spilað 48 leiki í deild- og bikar og gert 5 mörk.

Ægismenn hafa verið ánægðir með hans framlag og var ákveðið að gera skiptin varanleg.

Liðið hefur farið upp um tvær deildir á tveimur árum en það spilar í 2. deildinni á næstu leiktíð.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner