Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fim 18. nóvember 2021 20:39
Brynjar Ingi Erluson
Neil Taylor til Middlesbrough (Staðfest)
Neil Taylor samdi við Middlesbrough
Neil Taylor samdi við Middlesbrough
Mynd: Middlesbrough
Velski vinstri bakvörðurinn Neil Taylor er genginn til liðs við Middlesbrough í ensku B-deildinni en hann gerir tveggja mánaða samning við félagið.

Taylor, sem er 32 ára gamall, yfirgaf Aston Villa eftir síðustu leiktíð eftir að hafa spilað þar í fjögur ár.

Hann hefur verið án félags síðan en hann æfði með Middlesbrough í síðustu viku og í kjölfarið gerði félagið tveggja mánaða samning við leikmanninn.

Taylor á 43 landsleiki að baki fyrir Wales og kemur með mikla reynslu inn í hópinn.

Middlesbrough situr í 14. sæti ensku B-deildarinnar með 22 stig eftir sautján leiki.
Athugasemdir
banner