18.11.26 - 06:00
Ívan Guðjón Baldursson
Una og Sigurjón framlengja við Fram

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Una Rós Unnarsdóttir er búin að gera tveggja ára samning við Fram eftir að hafa verið mikilvægur hlekkur frá komu sinni í Úlfarsárdalinn.
Una Rós er 24 ára miðjumaður sem hefur leikið 46 leiki í deild og bikar á tveimur árum hjá Fram og skorað 4 mörk. Hún var hjá Grindavík áður en hún skipti til Fram.
Þá er Sigurjón Daði Harðarson búinn að skrifa undir tveggja ára samning eftir að hafa verið varamarkvörður liðsins í sumar.
Sigurjón gekk til liðs við Fram úr röðum Fjölnis fyrir tímabilið og hefur fallið vel inn í hópinn. Hann er fæddur 2001 og lék á táningsárunum 17 leiki fyrir unglingalandsliðin.
Nói Birgisson er að lokum búinn að skrifa undir sinn fyrsta samning við meistaraflokk, en hann er fæddur 2009 og uppalinn hjá félaginu.
„Það er frábært að sjá unga Framara stíga skrefin upp í meistaraflokka félagsins og erum við gríðarlega ánægð með Nóa og erum spennt að sjá hans framþróun á næstu árum hjá félaginu," segir meðal annars í tilkynningu frá Fram.