Fotbolti.net
18.11.26 - 06:00
Ívan Guðjón Baldursson

Þjóðadeildin: Kláruðu Haítí í kveðjuleik Pochettino

Þjóðadeildin: Kláruðu Haítí í kveðjuleik Pochettino
Canon

Mynd: EPA

Christian Pulisic skoraði með glæsilegri bakfallsspyrnu í 2-0 sigri Bandaríkjanna í kveðjuleik Mauricio Pochettino sem þjálfara.
Pochettino mælir með því við Guardiola að taka við Bandaríkjunum
TENGT EFNI

Pochettino mælir með því við Guardiola að taka við Bandaríkjunum

Pochettino er að flytja aftur til Englands þar sem hann mun taka við stjórn á stórveldinu sögufræga Manchester United.

Lærlingar Pochettino kvöddu hann því með samanlögðum 8-0 sigri á Haítí í síðustu tveimur leikjum hans við stjórnvölinn. Liðin mættust í 8-liða úrslitum Þjóðadeildarinnar og geta Bandaríkin spilað við Kanada, Panama eða Mexíkó/Jamaíku í undanúrslitum.

Weston McKennie lagði bæði mörk Bandaríkjanna upp gegn Haítí í nótt og skoraði hinn 18 ára gamli Julian Hall seinna markið, en hann skoraði líka í fyrri leiknum gegn Haítí.

Kanada vann samanlagt 7-3 gegn Gvatemala í 8-liða úrslitum. Liðin áttust við í seinna einvíginu sín á milli í Kanada í gærnótt og skópu heimamenn öruggan sigur eftir að hafa lent undir í fyrri hálfleik.

Panama lagði þá Curacao að velli með 2-0 sigri á heimavelli eftir markalaust jafntefli í fyrri leiknum.

Bandaríkin 2 - 0 Haítí (8-0 samanlagt)
1-0 Christian Pulisic ('25)
2-0 Julian Hall ('43)

Kanada 4 - 1 Gvatemala (7-3 samanlagt)

Panama 2 - 0 Curacao (2-0 samanlagt)


Þjóðadeildin: Kláruðu Haítí í kveðjuleik Pochettino
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.