Fotbolti.net
18.11.26 - 06:00
Ívan Guðjón Baldursson

Paz, Alvarez og Mastantuono með tvennu á haus

Paz, Alvarez og Mastantuono með tvennu á haus
Canon

Mynd: EPA

Það fóru vináttulandsleikir fram í gær og í nótt og rúllaði Argentína yfir Kosta Ríka með sjö mörkum gegn engu.
Nico Paz og Julián Alvarez settu sitthvora tvennuna í fyrri hálfleik og var báðum skipt af velli í leikhlé. Franco Mastantuono kom inn af bekknum og setti tvennu í síðari hálfleik og komst Alexis Mac Allister einnig á blað.

Darwin Núnez lagði þá upp fyrir Federico Valverde í stórsigri Úrúgvæ gegn Dóminíska lýðveldinu á meðan Ekvador hafði betur gegn Bólivíu.

Síle og Kólumbía gerðu markalaust jafntefli á meðan Ástralía tapaði óvænt fyrir Jórdaníu og þá skildu Írak og Íran jöfn.

Argentína 7 - 0 Kosta Ríka
1-0 Nico Paz ('8)
2-0 Julian Alvarez ('35)
3-0 Nico Paz ('38)
4-0 Julian Alvarez ('43)
5-0 Franco Mastantuono ('48)
6-0 Alexis Mac Allister ('78)
7-0 Franco Mastantuono ('88)

Úrúgvæ 5 - 0 Dóminíska lýðveldið
1-0 Rodrigo Aguirre ('41 )
2-0 Xavier Valdez ('70 , sjálfsmark)
3-0 Nicolas De La Cruz ('80 , víti)
4-0 Federico Valverde ('87 )
5-0 Bruno Damiani ('94 )

Ekvador 2 - 0 Bólivía
1-0 John Mercado ('20 )
2-0 Jordy Caicedo ('45+4 )

Síle 0 - 0 Kólumbía

Jórdanía 2 - 0 Ástralía

Írak 1 - 1 Íran

Kúveit 0 - 2 Hondúras

Rússland 2 - 0 Venesúela
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.