Fotbolti.net
18.11.26 - 06:00
Ívan Guðjón Baldursson

Griezmann valinn sem nýliði ársins

Griezmann valinn sem nýliði ársins
Canon

Mynd: MLS

Franski sóknarleikmaðurinn skemmtilegi Antoine Griezmann hefur hlotið verðlaun fyrir að vera besti nýliði ársins í bandarísku MLS deildinni.
35 ára Griezmann hefur verið algjör lykilmaður frá félagaskiptunum til Orlando City í júlí, þar sem hann er kominn með 15 mörk og 7 stoðsendingar í 22 leikjum.

Hann hjálpaði Orlando að tryggja sér sæti í úrslitakeppni MLS deildarinnar sem hefst um helgina.

Griezmann er fyrsti leikmaður í sögu Orlando sem vinnur nýliðaverðlaun deildarinnar en Guilherme og André Luiz, leikmenn Houston Dynamo og Sprting Kansas, komu í öðru og þriðja sæti í valinu á nýliða ársins.

Griezmann lék fyrir Real Sociedad, Atlético Madrid og Barcelona á mögnuðum ferli þar sem hann reyndist lykilmaður í sterku landsliði Frakka og endaði tvisvar sinnum í þriðja sæti í kjörinu á Ballon d'Or.

Griezmann svaraði spurningum í kringum valið á nýliða ársins og var meðal annars spurður út í Cristiano Ronaldo sem lagði landsliðsskóna á hilluna á dögunum, nokkrum mánuðum eftir að Lionel Messi gerði slíkt hið sama.

„Það er sorglegt að Cristiano hafi ákveðið að leggja landsliðsskóna á hilluna, hann er algjör goðsögn. Hann er algjör vél þegar kemur að framlagi, markaskorun og að vera sigurvegari. Ég naut þess virkilega mikið að spila gegn honum og sannleikurinn er að hann gerði sögulega hluti fyrir Portúgal. Það verður mjög erfitt að fylla í skarðið," sagði Griezmann.
Griezmann valinn sem nýliði ársins
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.