Fotbolti.net
18.11.26 - 05:55
Ívan Guðjón Baldursson

Meistaradeild kvenna í dag - Íslendingaliðin mæta stórveldum

Meistaradeild kvenna í dag - Íslendingaliðin mæta stórveldum
Canon

Mynd: Guðmundur Svansson

Kvennaboltinn
Það eru fjórir leikir á dagskrá í Meistaradeild kvenna í dag og í kvöld og mæta tvö Íslendingalið til leiks fyrri partinn.
Bæði liðin eiga erfið verkefni fyrir höndum sér, þar sem BK Häcken tekur á móti Englandsmeisturum Manchester City á sama tíma og Inter heimsækir Real Madrid.

Hin 18 ára gamla Thelma Karen Pálmadóttir er mikilvægur hlekkur í sænsku meistaraliði Hacken og verður líklegast á sínum stað í byrjunarliðinu gegn stjörnunum í Man City, rétt eins og hún byrjaði heimaleik gegn Chelsea í síðustu viku sem lauk með markalausu jafntefli.

Cecilía Rán Rúnarsdóttir og Karólína Lea Vilhjálmsdóttir fara þá með Inter í heimsókn til Madríd í leit að sigri eftir hörmulega byrjun í Meistaradeildinni. Inter steinlá gegn Lyon í fyrstu umferð og tapaði svo sannfærandi gegn Man City í síðustu viku. Cecilía og stöllur eru því án stiga og með markatöluna 1-10 eftir tvær umferðir.

Í kvöld tekur Chelsea svo á móti PSG í stórleik á meðan Juventus spilar við OH Leuven frá Belgíu.

Leikir dagsins
17:45 Hacken - Man City
17:45 Real Madrid - Inter
20:00 Chelsea - PSG
20:00 Juventus - OH Leuven
Meistaradeild kvenna í dag - Íslendingaliðin mæta stórveldum
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.