18.11.26 - 08:00
Ívan Guðjón Baldursson
Úrvalsdeildin biður félögin um fjárhagslegan stuðning

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Times er meðal fjölmiðla sem greina frá því að enska úrvalsdeildin mun biðja félagsliðin sem taka þátt í deildinni um hjálp ef stjórnendur deildarinnar lenda í dýrum lögsóknum frá Etihad, Etisalat og öðrum núverandi og fyrrverandi styrktaraðilum Manchester City.

TENGT EFNI
Enska úrvalsdeildin staðfestir niðurstöðuna
Óháð nefnd dæmdi gegn Man City í risastóru máli sem fótboltafélagið áfrýjaði í haust. Ekki er búist við að áfrýjunin beri árangur og gæti City verið dæmt niður um deild vegna málsins.
Huti málsins snýst um að opinberir styrktaraðilar félagsins hafi tekið virkan þátt í yfirhylmingu með City. Fyrirtæki eins og Etihad skrifuðu undir risastóra samninga við City, vitandi að þau þyrftu aðeins að greiða lítinn hluta upphæðanna til félagsins. Félagið þurfti stóra styrktarsamninga á pappír til þess að geta keypt dýrari leikmenn og borgað hærri laun án þess að brjóta fjármálareglur enska boltans og Meistaradeildarinnar, en peningarnir komu nánast allir úr vösum eigenda City.
Etihad og aðrir styrktaraðilar hafa þverneitað fyrir þessar ásakanir og segjast íhuga að kæra ensku úrvalsdeildina, sem býst bæði við kærum gegn deildinni sjálfri og einstökum stjórnarmeðlimum. Því munu stjórnarmeðlimirnir biðla til úrvalsdeildarfélaga um að standa straum af lögmannakostnaði sem gæti orðið gríðarlega hár.
Stjórnendur úrvalsdeildarinnar, leiddir af Richard Masters, munu ræða málið á næsta eigendafundi úrvalsdeildarfélaga síðar í vikunni.
Samþykki úrvalsdeildarfélögin að standa straum af kostnaðinum gætu þau endað á að borga hundruði milljóna punda yfir næstu ár.
Samþykki myndi jafnframt fela í sér framtíðarstuðning við úrvalsdeildina og stjórnendur þess komi til frekari lögsókna.