Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   þri 18. desember 2018 18:04
Ívan Guðjón Baldursson
Zlatan framlengir við LA Galaxy (Staðfest)
Mynd: Getty Images
Sænska goðsögnin Zlatan Ibrahimovic er búin að skrifa undir nýjan samning við LA Galaxy.

Samningurinn gildir út næsta tímabil en Zlatan vildi frekar vera áfram í Bandaríkjunum heldur en að skipta aftur yfir til AC Milan í ítalska boltanum.

Milan hefur sýnt Svíanum áhuga upp á síðkastið en hann gerði gott mót í MLS deildinni þar sem hann skoraði 22 mörk og lagði 10 upp í 27 leikjum.

Zlatan varð 37 ára gamall í október en hann virðist ennþá eiga nóg eftir í tanknum.




Athugasemdir
banner
banner