Kovac orðaður við stjórastól Liverpool - Newcastle vill Gibbs-White - Dewsbury-Hall orðaður við Tottenham
   sun 18. desember 2022 13:00
Ívan Guðjón Baldursson
Malang Sarr vill skipta um félag í janúar
Mynd: Getty Images

Franski miðvörðurinn Malang Sarr var keyptur til Chelsea fyrir tveimur og hálfu ári síðan en hefur ekki tekist að festa sig í sessi hjá úrvalsdeildarfélaginu.


Hinn 23 ára gamli Sarr var því lánaður til AS Mónakó í haust en hefur fengið lítinn spiltíma - ekki ósvipað því sem gerðist þegar hann var lánaður til FC Porto tímabilið 2020-21.

„Hann er ekki að fá nægan spiltíma hjá Mónakó sem eru vonbrigði því hann fór frá Chelsea til að fá að spila meiri fótbolta. Vonandi leyfa þeir honum að fara á lán til annars félags þar sem hann fær meiri spiltíma," sagði Federico Pastorello, umboðsmaður Sarr, við TMW.

„Torino vildi hann síðasta sumar og AC Milan hefur verið að fylgjast með honum undanfarin misseri."


Athugasemdir
banner
banner
banner