Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
banner
   sun 18. desember 2022 07:30
Ívan Guðjón Baldursson
PSG undirbýr samningstilboð fyrir Messi
Mynd: Getty Images

Frakklandsmeistarar Paris Saint-Germain munu bjóða Lionel Messi nýjan eins árs samning á næstu vikum. Fabrizio Romano greinir frá þessu.


Stjórnendur PSG og þjálfararnir vilja ólmir halda Messi hjá félaginu í eitt ár til viðbótar hið minnsta. PSG ætlaði að bíða með að bjóða Messi nýjan samning en hefur ákveðið að flýta fyrir viðræðum eftir samningstilboð frá Inter Miami.

Inter Miami leikur í bandarísku MLS deildinni og er að reyna að lokka leikmenn á borð við Lionel Messi, Sergio Busquets og Luis Suarez til sín. David Beckham er meðal eigenda Inter Miami.

Ólíklegt er að Barcelona geti leyft sér að gera tilboð í Messi sem mun velja á milli Inter og PSG á næsta ári nema önnur félög bætist við kapphlaupið.

Hinn 35 ára gamli Messi virðist eiga nóg eftir á bensíntankinum. Hann er að eiga frábært tímabil með PSG og tókst að leiða Argentínu alla leið í úrslitaleik heimsmeistaramótsins, sem fer fram í dag.


Athugasemdir
banner
banner