Fotbolti.net
19.01.21 - 21:52
Aksentije Milisic

FA-bikarinn: Southampton komst áfram í fjórðu umferð

FA-bikarinn: Southampton komst áfram í fjórðu umferð
Canon

Mynd: Getty Images

Southampton 2 - 0 Shrewsbury
1-0 Dan Nlundulu ('16 )
2-0 James Ward-Prowse ('89 )
Southampton fékk Shrewsbury í heimsókn í lokaleik í þriðju umferð FA-bikarsins á Englandi en um frestaðan leik var að ræða.

Shrewsbury leikur í C-deild og lenti liðið undir á 16. mínútu en það var Dan Nlundulu sem skoraði fyrir Southampton.

Staðan var lengi vel 1-0 en það var síðan fyrirliðinn sjálfur James Ward-Prowse sem gulltryggði sigurinn Southampton og farseðilinn í fjórðu umferðina.

Southampton mætir Arsenal í næstu umferð bikarins en leikið er í hádeginu næstkomandi laugardag.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.