Barcelona vill Díaz frá Liverpool - Úlfarnir skoða markverði - City til í að hlusta á tilboð í Grealish
   fim 19. janúar 2023 23:53
Brynjar Ingi Erluson
Einkunnir Man City og Tottenham: Bjargvætturinn Mahrez sýndi snilli sína
Riyad Mahrez
Riyad Mahrez
Mynd: EPA
Riyad Mahrez var besti maður vallarins er Manchester City sigraði Tottenham, 4-2, á Etihad í kvöld. Hann skoraði mörkin sem skiluðu liðinu sigrinum.

Man City var tveimur undir í hálfleik en Julian Alvarez og Erling Braut Haaland sáu til þess að jafna leikinn.

Mahrez skoraði síðan þriðja mark Man City eftir mistök frá Hugo Lloris og var síðan vel vakandi er Clement Lenglet gerði slæm mistök í vörninni og kláraði leikinn.

Hann fær 9 í einkunn frá Manchester Evening News. Ederson var slakastur með 4, enda gaf hann fyrsta markið sem liðið fékk á sig.

Manchester City: Ederson (4), Lewis (8), Stones (7), Akanji (6), Ake (7), Rodri (6), Gundogan (7), Alvarez (6), Mahrez (9), Grealish (7), Haaland (6).

Tottenham Hotspur: Lloris (3), Romero (6), Dier (5), Davies (5), Emerson (6), Hojbjerg (6), Bentancur (7), Perisic (2), Kulusevski (7), Son (4), Kane (5).
Varamenn: Lenglet (4), Sessegnon (5), Bissouma (6), Richarlison (6).
Athugasemdir
banner
banner
banner