Hver tekur við af Klopp? - Dani Olmo orðaður við Man Utd - Greenwood í skiptum fyrir Gleison Bremer
   fös 19. mars 2021 22:04
Ívan Guðjón Baldursson
Dagur Dan í Fylki (Staðfest)
Mynd: Fylkir
Fylkir er búinn að staðfesta mikinn liðsstyrk fyrir sumarið því Dagur Dan Þórhallsson kemur heim til að hjálpa Árbæingum.

Dagur Dan er fæddur um aldamótin og mun spila sinn fyrsta keppnisleik fyrir félagið í sumar þrátt fyrir að vera uppalinn þar.

Dagur Dan lék aðeins fyrir Hauka og Keflavík hér á landi en hefur einnig verið hjá Gent, Mjondalen og Halden.

Dagur hefur spilað 22 leiki með yngri landsliðum Íslands og skoraði í þeim 2 mörk.

„Dagur Dan byrjaði sinn feril í Fylki og fögnum við því vel að hann sé kominn aftur til okkar. Velkominn aftur í Árbæinn Dagur Dan," segir meðal annars í yfirlýsingu frá Fylki.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner